1. sunnudagur í föstu (Invokavit) - Freistingin / Prófið
Litur: Fjólublár
Vers vikunnar:
,,Til þess birtist Guðs sonur, að hann skyldi brjóta niður verk djöfulsins” (1Jóh 3.8)
Bæn dagsins:
Drottinn Guð, við komum fram fyrir auglit þitt aum og kraftlaus og biðjum þig að vaka yfir okkur og vaka í okkur, svo að líkami okkar sé verndaður frá öllu illu og að hugur okkar og sál varðveitist frá vondum hugsunum. Þess biðjum við í nafni Jesú Krists sem stóðst allar freistingar og gefur okkur hlutdeild í sigri sínum yfir öllu illu. Amen.
Þriðja lestraröð
Lexía: Slm 1
Sæll er sá sem eigi fer að ráðum óguðlegra,
eigi gengur götur syndara
og eigi situr meðal háðgjarnra
heldur hefur yndi af leiðsögn Drottins
og hugleiðir lögmál hans dag og nótt.
Hann er sem tré gróðursett hjá lindum,
það ber ávöxt sinn á réttum tíma
og blöð þess visna ekki.
Allt, sem hann gerir, lánast honum.
Óguðlegum farnast á annan veg,
þeir hrekjast sem hismi í stormi.
Því hvorki standast óguðlegir fyrir dómi
né syndarar í söfnuði réttlátra.
Drottinn vakir yfir vegi réttlátra
en vegur óguðlegra endar í vegleysu.
Pistill: 2Kor 13-5-8
Rannsakið hvort trú ykkar kemur fram í breytni ykkar, prófið ykkur sjálf. Gerið þið ykkur ekki grein fyrir að Jesús Kristur lifir í ykkur? Það skyldi vera að þið stæðust ekki prófið. En ég vona að þið komist að raun um að ég hef staðist prófið. Ég bið til Guðs að þið gerið ekki neitt illt, ekki til þess að það sýni ágæti mitt heldur til þess að þið gerið hið góða. Ég gæti eins sýnst óhæfur. Því að ekki megna ég neitt gegn sannleikanum heldur með hjálp hans.
Guðspjall: Lúk 10.17-20
Nú komu þeir sjötíu og tveir aftur með fögnuði og sögðu: „Drottinn, jafnvel illir andar hlýða okkur þegar við tölum í þínu nafni.“
En Jesús mælti við þá: „Ég sá Satan hrapa af himni sem eldingu. Ég hef gefið yður vald að stíga á höggorma og sporðdreka og yfir öllu óvinarins veldi. Alls ekkert mun gera yður mein. Gleðjist samt ekki af því að illu andarnir hlýða yður, gleðjist öllu heldur af hinu að nöfn yðar eru skráð í himnunum.“
Sálmur 200
Þú, Guðs son, eilíf gæskulind,
að guðdómsvaldi ríkur,
þig klæddir vorri moldarmynd
og mönnum gjörðist líkur,
þú hefur lítillækkað þig
til líknar kyni manna,
svo leiddir það á lífsins stig
til ljóss og dýrðar ranna
úr hlekkjum hörmunganna.
Því valdið aftur hlaustu hátt,
sem hverri tign er stærra,
og guðdómsnafnið eilíft átt
nú öllum nöfnum hærra.
Hvert hné á jörð og himni sig
til heiðurs þér æ beygi,
hver tunga sífellt tigni þig,
í trú hver rómur segi
þér lof, sem linnir eigi.
Sb. 1886 - Helgi Hálfdánarson