7. sunnudagur eftir þrenningarhátíð Við borð Drottins.
Litur: Grænn.
Vers vikunnar:
„Þess vegna eruð þið ekki framar gestir og útlendingar heldur eruð þið samþegnar hinna heilögu og heimamenn Guðs.“ (Ef 2.19)
Bæn dagsins:
Drottinn dýrðarinnar, þú sem gefur okkur allt sem við þörfnumst til að lifa, og gefur okkur Jesú Krist, son þinn, hann sem er brauð lífsins. Opna hjörtu okkar og huga svo að við meðtökum hversu ríkulega gæsku þú sýnir öllum mönnum í Jesú Kristi, bróður okkar og Drottni. Amen.
Þriðja lestraröð
Lexía: Am 8.11-12
Sjá, þeir dagar koma, segir Drottinn Guð,
að ég sendi hungur til landsins,
hvorki hungur eftir brauði né þorsta eftir vatni,
heldur eftir orði Drottins.
Þá munu menn reika frá einu hafi til annars,
flakka frá norðri til austurs
og leita að orði Drottins
en þeir munu ekki finna það.
Pistill: Heb 13.1-6
Bróðurkærleikurinn haldist. Gleymið ekki gestrisninni því að vegna hennar hafa sumir hýst engla án þess að vita. Minnist bandingjanna sem væruð þið sambandingjar þeirra. Minnist þeirra er illt líða þar eð þið finnið til eins og þeir.
Hjúskapurinn sé í heiðri hafður í öllum greinum og hjónasængin sé óflekkuð því að hórkarla og frillulífismenn mun Guð dæma.
Verið ekki fégráðug en látið ykkur nægja það sem þið hafið. Guð hefur sjálfur sagt: „Ég mun ekki sleppa af þér hendinni né yfirgefa þig.“ 6 Því getum við örugg sagt:
Drottinn er minn hjálpari,
eigi mun ég óttast.
Hvað geta mennirnir gert mér?
Guðspjall: Matt 16.5-12
Þegar lærisveinarnir fóru yfir um vatnið höfðu þeir gleymt að taka með sér brauð. Jesús sagði við þá: „Gætið ykkar, varist súrdeig farísea og saddúkea.“ En lærisveinarnir ræddu sín á milli að þeir hefðu ekki tekið brauð. Jesús varð þess vís og sagði: „Hvað eruð þið að tala um það, trúlitlir menn, að þið hafið ekki brauð? Skynjið þið ekki enn? Minnist þið ekki brauðanna fimm handa fimm þúsundum og hve margar körfur þið tókuð saman? Eða brauðanna sjö handa fjórum þúsundum og hve margar körfur þið tókuð saman? Hvernig má það vera að þið skynjið ekki að ég var ekki að tala um brauð við ykkur? Varist súrdeig farísea og saddúkea.“ Þá skildu þeir að hann hafði ekki talað um að varast súrdeig í brauði heldur kenningu farísea og saddúkea.
Sálmur 292
Gegnum hættur, gegnum neyð
göngum, Krists menn, vora leið.
Hvorki blöskri böl né kross,
brauðið lífsins styrkir oss.
Hræðumst engin sorgarsár,
sérhvert bráðum þornar tár.
Ótti hreki' oss ei af braut,
orkan vaxi' í hverri þraut.
Hugprúð gleðjist, hjörtu mædd,
herskrúðanum Drottins klædd.
Berjumst hart, ei hríð er löng,
hún mun enda' í gleðisöng.
Áfram því með dug og dáð,
Drottins studdir ást og náð.
Sé hann með oss, ekkert er
óttalegt. Þá sigrum vér.
Gegnum hættur, gegnum neyð
göngum, Krists menn, vora leið.
Hvorki blöskri böl né kross,
brauðið lífsins styrkir oss.
White - Maitland - Sb. 1886 - Stefán Thorarensen