20. sunnudagur eftir trinitatis: Reglur Guðs. / Að lifa í samfélagi hvert við annað
20. sunnudagur eftir trinitatis:
Reglur Guðs. / Að lifa í samfélagi hvert við annað
Hann hefur sagt þér maður hvað gott sé. Og hvað heimtar Drottinn annað af þér en að gjöra
rétt, ástunda kærleika og framganga í lítillæti fyrir Guði þínum? Míka 6, 8
Litur grænn
Bæn dagsins / kollektan
Guð birtunnarog skýrleikans. Þú sýnir okkur veginn sem þú villt að við göngum. Þegar við
tökum ákvörðun og framkvæmum í samræmi við vilja þinn gef okkur þá kjark til að taka
nægilega stór skref. Fyrir Jesú Krist sem er upphaf og fullkomnun trúarinnar. Amen.
Þriðja lestraröð
1. Sam. 20. 35-43
Morguninn eftir gekk Jónatan út á vellina eins og þeir Davíð höfðu ákveðið og hafði ungan
dreng með sér. Hann sagði við drenginn: „Farðu og finndu örvarnar sem ég skýt.“ Drengurinn
hljóp af stað og hann skaut ör fram hjá honum. Þegar drengurinn kom þangað sem Jónatan
hafði miðað örinni kallaði Jónatan til hans: „Liggur örin ekki lengra frá þér?“ Jónatan kallaði
enn fremur á eftir drengnum: „Áfram nú, flýttu þér, stattu ekki kyrr.“ Drengurinn tók örina
upp, sneri aftur til húsbónda síns og grunaði ekkert. Jónatan og Davíð vissu einir hvað um var
að vera. Síðan fékk Jónatan drengnum, sem með honum var, vopn sín og sagði: „Farðu með
þetta til borgarinnar.“ Þegar drengurinn var farinn reis Davíð upp úr fylgsninu við steininn,
laut Jónatan þrisvar og varpaði sér til jarðar. Þeir kysstust og grétu báðir en Davíð sýnu
meir. Jónatan sagði við hann: „Far þú í friði. Drottinn er ævarandi vitni okkar og afkomenda
okkar að því sem við höfum svarið hvor öðrum við nafn hans.“
Pistill 1.Þess. 4.1-8
Að endingu bið ég ykkur, bræður og systur,og hvet ykkur í Drottni Jesú til að breyta eins og
þið hafið numið af mér og þóknast Guði eins og þið reyndar gerið. En takið enn meiri
framförum. Þið vitið hvaða fyrirmæli ég gaf ykkur frá Drottni Jesú. Það er vilji Guðs að þið
verðið heilög. Hann vill að þið haldið ykkur frá óskírlífi, að sérhvert ykkar temji sér að halda
líkama sínum í helgun og heiðri en ekki í losta eins og heiðingjarnir er ekki þekkja Guð. Og
enginn skyldi ganga á hlut eða blekkja nokkurn bróður eða systur í slíkum sökum. Því að
Drottinn hegnir fyrir allt þvílíkt eins og ég hef áður sagt ykkur og varað ykkur við. Ekki
kallaði Guð okkur til saurlifnaðar heldur helgunar. Sá sem lítilsvirðir þetta lítilsvirðir þess
vegna ekki mann heldur Guð sem gefur ykkur sinn heilaga anda.
Guðspjallið Matt. 21. 33-44
Enn sagði Jesús: „Heyrið aðra dæmisögu: Landeigandi nokkur plantaði víngarð. Hann hlóð
garð um hann, gróf fyrir vínþröng og reisti turn, seldi hann síðan vínyrkjum á leigu og fór úr
landi. Þegar ávaxtatíminn nálgaðist sendi hann þjóna sína til vínyrkjanna að fá ávöxt sinn. En
vínyrkjarnir tóku þjóna hans, börðu einn, drápu annan og grýttu hinn þriðja. Aftur sendi hann
aðra þjóna, fleiri en þá fyrri, og eins fóru þeir með þá. Síðast sendi hann til þeirra son sinn og
sagði: Þeir munu virða son múinn. Þegar vínyrkjarnir sáu soninn sögðu þeir sín á milli: Þetta
er erfinginn. Förum og drepum hann og náum arfi hans. Og þeir tóku hann, köstuðu honum út
fyrir víngarðinn og drápu hann.
Hvað mun nú eigandi víngarðsins gera við vínyrkja þessa þegar hann kemur?“
Þeir svara: „Hann mun vægðarlaust tortíma þeim vondu mönnum og selja víngarðinn öðrum
vínyrkjum á leigu sem gjalda honum ávöxtinn á réttum tíma.“
Og Jesús segir við þá: „Hafið þið aldrei lesið í ritningunum:
Steinninn sem smiðirnir höfnuðu
er orðinn að hyrningarsteini.
Þetta er verk Drottins
og undursamlegt í augum vorum.
Þess vegna segi ég ykkur: Guðs ríki verður tekið frá ykkur og gefið þeirri þjóð sem ber ávexti
þess. Sá sem fellur á þennan stein mun sundur molast og þann sem hann fellur á mun hann
sundur merja.
Sálmur Sb 608
Þú heimsins ljós, Guðs ljómi skær,
ó, lýs þú, Kristur, fjær og nær,
leið alla týnda til þín heim
og tak í náð á móti þeim.
Lát alla, sem ei þekkja þig,
og þá, sem sem villast, átta sig,
frá birtu þinni bjarma fá
og blessun finna, marki ná.
Vek, hirðir góði, hverja sál,
sem hyllir blekking, lokkar tál,
og hverja sjúka, sára önd
þín sefi mjúka læknishönd.
Lát eyrun daufu opnast þér,
ljúk upp þeim hug, sem byrgður er,
svo hjartað finni frelsi sitt
og friðinn eina, ríki þitt.
Gef blindum augum bót og sýn,
að birtist öllum náðin þín,
ger alla menn að einni hjörð
í einni trú á nýrri jörð.
Svo verði allir eitt í þér,
sem allra synd og raunir ber,
eins hér á jörð sem himnum á,
þú hjartans sanna von og þrá.
Heermann - Sigurbjörn Einarsson