23. sunnudagur eftir trinitatis: - Kirkjan í heiminum
Litur: Grænn.
Vers vikunnar:
Konungi konunganna og Drottni drottnanna sem einn hefur ódauðleika honum sé heiður og eilífur máttur. (sbr. 1Tím 6.15-16)
Bæn dagsins:
Guð, þú sem einn ert Drottinn, gef okkur kjark til að fylgja kalli þínu og taka þá áhættu sem felst í frelsinu sem þú kallar okkur til, fyrir Jesú Krist, bróður okkar og Drottinn. Amen.
Þriðja lestraröð
Lexía: Slm 50.14-15, 23
Færðu Guði þakkarfórn
og efndu heit þín við Hinn hæsta.
Ákalla mig á degi neyðarinnar
og ég mun frelsa þig
og þú skalt vegsama mig.“
Sá sem færir þakkarfórn heiðrar mig
og þann sem breytir grandvarlega
læt ég sjá hjálpræði Guðs.
Pistill: 2Kor 8.1-8
En svo vil ég, bræður mínir og systur skýra ykkur frá þeirri náð sem Guð hefur sýnt söfnuðunum í Makedóníu. Þrátt fyrir þær miklu þrengingar sem þeir hafa orðið að reyna hefur hin ríka gleði þeirra leitt í ljós hve örlátir þeir eru þrátt fyrir sára fátækt. Ég get vottað það hversu þeir hafa gefið eftir efnum, já, umfram efni sín. Af eigin hvötum lögðu þeir fast að mér og báðu um að mega taka þátt í samskotunum til hinna heilögu. Og þeir gerðu betur en ég hafði vonað, þeir gáfu sjálfa sig, fyrst og fremst Drottni og síðan mér að vilja Guðs. Það varð til þess að ég bað Títus að hann skyldi og leiða til lykta hjá ykkur þessa gjöf eins og hann hefur byrjað. Þið skarið fram úr í öllu, í trú, í mælsku og þekkingu, í allri alúð og í elsku ykkar sem ég hef vakið.Þannig skuluð þið skara fram úr í þessari gjöf. Ég segi þetta ekki sem skipun heldur er ég að ganga úr skugga um hvort kærleiki ykkar sé einlægur samanborið við ósérplægni annarra.
Guðspjall: Matt 6.1-4
Varist að iðka réttlæti yðar fyrir mönnum þeim til sýnis, annars eigið þér engin laun hjá föður yðar á himnum.
Þegar þú gefur ölmusu skaltu ekki láta þeyta lúður fyrir þér eins og hræsnarar gera í samkunduhúsum og á strætum til þess að hljóta lof af mönnum. Sannlega segi ég yður, þeir hafa tekið út laun sín.
En þegar þú gefur ölmusu viti vinstri hönd þín ekki hvað sú hægri gerir svo að ölmusa þín sé í leynum og faðir þinn, sem sér í leynum, mun umbuna þér.
Sálmur 735
Ég hús sé háreist standa
og horfa' um löndin víð,
úr efni ævaranda
er alvalds listasmíð.
Drottinn, dýrð sé þér,
Drottinn, lof sé þér.
Ó, herra, húsið þitt
sé hæli' og athvarf mitt.
Á Síons frægu fjalli
þú forðum reistir vé,
svo glatt sem lúður gjalli
orð Guðs þar boðað sé,
Drottinn, þökk sé þér
þig lofsyngjum vér.
Þitt orð oss boða ber
og bera vitni þér.
Og kirkja Krists mun standa
á kletti trúar reist,
í skjóli herrans handa
sé hennar farsæld treyst.
Drottinn, dýrð sé þér,
Drottinn, lof sé þér.
Ó, herra, húsið þitt
sé hæli' og athvarf mitt.
Morh - Marx - Kristján Árnason