Uppstigningardagur Herra himins og jarðar. Hann mun ríkja.
UppstigningardagurHerra himins og jarðar.
Hann mun ríkja.
Litur: Hvítur.
Kollekta:
Alvaldi, eilífi Guð, við biðjum þig: Veit okkur sem trúum því að einkasonur þinn, Jesús Kristur, frelsari vor, sé upp stiginn til himna, að við megum með hug og hjarta vera hjá honum og eilíflega fylgja honum sem með þér lifir og ríkir í einingu heilags anda, einn sannur Guð um aldir alda.
Textaröð: B
Lexía: 2Kon 2.1-2, 11-15a
Þegar Drottinn hugðist hefja Elía til himins í stormviðri voru þeir Elía og Elísa á leið frá Gilgal. Elía sagði við Elísa: „Bíð hér því að Drottinn hefur sent mig til Betel.“ En Elísa svaraði: „Svo sannarlega sem Drottinn lifir og svo sannarlega sem þú sjálfur lifir, þá yfirgef ég þig ekki.“ Síðan fóru þeir niður til Betel.
Meðan þeir voru að tala saman á göngunni birtist skyndilega eldvagn með eldhestum fyrir er skildi þá að og Elía fór til himins í stormviðri. Elísa sá það og hrópaði: „Faðir minn, faðir minn. Þú, vagn Ísraels og vagnstjóri.“ Þegar Elía var horfinn sjónum hans þreif Elísa yfirhöfn sína og reif hana í tvennt. Þá tók hann upp skikkju Elía, sem hafði fallið af honum, sneri við og staðnæmdist á bökkum Jórdanar. Hann tók skikkju Elía, sem hafði fallið af honum, sló með henni á vatnið og sagði: „Hvar er nú Drottinn, Guð Elía?“ Þegar hann sló á vatnið skiptist það og Elísa gekk yfir.
Þegar lærisveinar spámannanna í Jeríkó komu auga á hann úr nokkurri fjarlægð sögðu þeir: „Andi Elía hvílir yfir Elísa.“
Pistill: Ef 1.17-23
Ég bið Guð Drottins vors Jesú Krists, föður dýrðarinnar, að gefa ykkur anda speki og opinberunar svo að þið fáið þekkt hann. Ég bið hann að upplýsa sjón hjartans svo að þið sjáið hver sú von er sem hann hefur kallað okkur til, hve ríkulega og dýrlega arfleifð hann ætlar okkur meðal hinna heilögu og hve kröftuglega hann verkar í okkur sem trúum. En þetta er sami áhrifamikli, kröftugi mátturinn sem hann lét koma fram í Kristi er hann vakti hann frá dauðum og lét hann setjast sér til hægri handar á himnum, ofar hverri tign og valdi og mætti, ofar öllum herradómi og sérhverju nafni sem nefnt er, ekki aðeins í þessari veröld heldur og í hinni komandi. Allt hefur hann lagt undir fætur honum og gefið hann kirkjunni sem höfuðið yfir öllu. En kirkjan er líkami hans og fyllist af honum sem sjálfur fyllir allt í öllu.
Guðspjall: Lúk 24.44-53
Og hann sagði við þau: „Meðan ég var enn meðal ykkar sagði ég ykkur: Allt sem ritað er um mig í lögmáli Móse, spámönnunum og sálmunum á að rætast.“
Síðan lauk hann upp huga þeirra að þau skildu ritningarnar. Og hann sagði við þau: „Svo er skrifað að Kristur eigi að líða og rísa upp frá dauðum á þriðja degi og að prédika skuli í nafni hans öllum þjóðum að taka sinnaskiptum og þiggja fyrirgefningu synda og hefja það í Jerúsalem. Þið eruð vottar þessa. Ég sendi ykkur andann sem faðir minn hét ykkur en verið kyrr í borginni uns þið íklæðist krafti frá hæðum.“
Síðan fór hann með þau út í nánd við Betaníu, hóf upp hendur sínar og blessaði þau. En það varð, meðan hann var að blessa þau, að hann skildist frá þeim og var upp numinn til himins. En þau féllu fram og tilbáðu hann og sneru aftur til Jerúsalem með miklum fögnuði. Og þau voru stöðugt í helgidóminum og lofuðu Guð.