Kirkjudagur
Kollekta:Eilífi Guð, vér þökkum þér, að þú hefur látið orð þitt búa meðal vor og helgað þetta hús með nálægð þinni: Heyr bænir vorar og gef, að sérhver sá er hér leitar þín, megi finna þig og fagna yfir miskunn þinni og réttlæti. Fyrir son þinn Jesú Krist, Drottin vorn, sem með þér lifir og ríkir í einingu heilags anda, einn sannur Guð um aldir alda.
Textaröð: A
Lexía: 1Kon 8.22-30
Þessu næst gekk Salómon fyrir altari Drottins andspænis öllum söfnuði Ísraels, lauk upp lófum til himins og bað: „Drottinn, Guð Ísraels, enginn guð er sem þú, hvorki á himni né á jörðu. Þú heldur sáttmálann og sýnir þeim þjónum þínum trúfesti sem breyta af heilum hug frammi fyrir augliti þínu. Þú hefur staðið við það sem þú lofaðir þjóni þínum, Davíð föður mínum. Það sem þú lofaðir með munni þínum hefur þú efnt í dag með hendi þinni. Drottinn, Guð Ísraels, efndu nú einnig fyrirheitið sem þú gafst þjóni þínum, Davíð föður mínum, þegar þú sagðir: Niðjar þínir munu ætíð sitja frammi fyrir mér í hásæti Ísraels svo framarlega sem þeir vanda framferði sitt og breyta frammi fyrir mér eins og þú hefur gert. Guð Ísraels, stattu nú við fyrirheitið sem þú gafst Davíð, þjóni þínum.
Býr Guð þá í raun og veru á jörðinni? Nei, jafnvel himinninn og himnar himnanna rúma þig ekki, hvað þá þetta hús sem ég hef byggt. Gefðu gaum að ákalli þjóns þíns og bæn hans, Drottinn Guð. Heyr ákallið og bænina sem ég, þjónn þinn, ber fram fyrir þig í dag.
Lát augu þín vaka yfir þessu húsi dag og nótt, þeim stað sem þú hefur sagt um: Þar skal nafn mitt búa. Heyr bænina er þjónn þinn biður á þessum stað. Er þjónn þinn og lýður þinn, Ísrael, biður og snýr í átt til þessa staðar, heyr ákall hans. Hlustaðu á það í himninum þar sem þú býrð. Heyr það og fyrirgef.
Pistill: 1Pét 2.4-9
Komið til hans, hins lifanda steins, sem menn höfnuðu en er í augum Guðs útvalinn og dýrmætur. Látið sjálf uppbyggjast sem lifandi steinar í andlegt hús til heilags prestdóms, til að bera fram andlegar fórnir fyrir Jesú Krist, Guði velþóknanlegar. Því að svo stendur í Ritningunni:
Sjá, ég set hornstein í Síon,
valinn og dýrmætan.
Sá sem trúir á hann mun alls eigi verða til skammar.
Yður sem trúið er hann dýrmætur en hinum vantrúuðu er steinninn, sem smiðirnir höfnuðu,
orðinn að hyrningarsteini
og:
ásteytingarsteini og hrösunarhellu.
Þeir steyta sig á honum af því að þeir óhlýðnast boðskapnum. Það var þeim ætlað.
En þið eruð „útvalin kynslóð, konunglegur prestdómur, heilög þjóð, eignarlýður, til þess að þið skuluð víðfrægja dáðir hans,“ sem kallaði ykkur frá myrkrinu til síns undursamlega ljóss.
Guðspjall: Jóh 10.22-30
Nú var vígsluhátíðin í Jerúsalem og kominn vetur. Jesús gekk um í súlnagöngum Salómons í helgidóminum. Þá söfnuðust menn um hann og sögðu: „Hve lengi lætur þú okkur í óvissu? Ef þú ert Kristur, þá segðu okkur það berum orðum.“
Jesús svaraði þeim: „Ég hef sagt yður það en þér trúið ekki. Verkin, sem ég geri í nafni föður míns, vitna um mig en þér trúið ekki því að þér eruð ekki úr hópi sauða minna. Mínir sauðir heyra raust mína og ég þekki þá og þeir fylgja mér. Ég gef þeim eilíft líf og þeir skulu aldrei að eilífu glatast og enginn skal slíta þá úr hendi minni. Faðir minn, sem hefur gefið mér þá, er meiri en allir og enginn getur slitið þá úr hendi föðurins. Ég og faðirinn erum eitt.“
Sálmur: 288
Guðs kirkja er byggð á bjargi,
en bjargið Jesús er,
hún er hans undrasmíði,
sem alla dýrð hans ber.
Af vatni, orði og anda
hún öðlast hefur líf,
og sett á öllum öldum
sem allra þjóða hlíf.
Í hennar háu sölum
býr heilög, frelsuð drótt,
í trú og einum anda
hún á sinn mikla þrótt.
Þar rúmast allir inni,
með einum hug og sál,
og sérhver kynslóð sést þar
og sérhvert heyrist mál.
Hún lýst er upp með ljósi,
sem lýsir út um heim,
í nákalt niðamyrkrið
og næturskuggans geim.
Á ljós það lýðir stefna
sem líkn og sannleik þrá,
þar rúm er öllum reiknað,
sem ratað þangað fá.
Og þar er gott að þreyja,
því þrennur Guð og einn
þar vakir öllum yfir,
svo ekki glatist neinn,
sem þar í trú og trausti
sér tryggir samastað,
og flýr úr syndafjötrum
í frelsisvígið það.
Stone – Friðrik Friðriksson