12. sunnudagur eftir þrenningarhátíð
12. sunnudagur eftir þrenningarhátíðLitur: Grænn.
Lækningin mikla / Frelsið í Kristi
Vers vikunnar:
„Brákaðan reyrinn brýtur hann ekki sundur og dapran hörkveik slekkur hann ekki.“ (Jes 42.3a)
Kollekta:
Almáttugi, miskunnsami Guð. Það er gjöf náðar þinnar að þau sem á þig trúa veiti þér verðuga og lofsamlega þjónustu. Við biðjum þig: Veit að við megum höndla fyrirheit þín án þess að hrasa. Fyrir son þinn Jesú Krist, Drottin vorn, sem með þér lifir og ríkir í einingu heilags anda, einn sannur Guð um aldir alda.
Textaröð: B
Lexía: Jes 30.15, 18-19
Því að svo segir Drottinn Guð, Hinn heilagi Ísraels:
„Fyrir afturhvarf og rósemi munuð þér frelsast,
í þolinmæði og trausti skal styrkur yðar vera.“
En þér vilduð þetta ekki
Því bíður Drottinn þess að sýna yður náð,
þess vegna rís hann upp til að miskunna yður,
því að Drottinn er Guð réttlætisins.
Sælir eru þeir sem á hann vona.
Já, þú þjóð á Síon,
sem býrð í Jerúsalem,
þú skalt ekki gráta lengur.
Hann verður þér náðugur.
Þegar þú hrópar á hjálp
mun hann bænheyra þig.
Pistill: Kól 4.2-6
Verið stöðug í bæninni, vakið og biðjið með þakkargjörð. Biðjið jafnframt fyrir mér að Guð opni mér dyr fyrir orðið og ég geti boðað leyndardóm Krists. Hans vegna er ég nú í böndum. Biðjið að ég megi birta hann eins og mér ber að tala.
Umgangist þá viturlega sem fyrir utan eru og notið hverja stund. Mál ykkar sé ætíð ljúflegt en salti kryddað til þess að þið vitið hvernig þið eigið að svara hverjum manni.
Guðspjall: Lúk 13.10-17
Jesús var að kenna á hvíldardegi í samkundu einni. Þar var þá kona nokkur. Í átján ár hafði hún verið sjúk. Hún var kreppt og alls ófær að rétta sig upp. Jesús sá hana og kallaði hana til sín og sagði við hana: „Kona, þú ert laus við sjúkleik þinn!“ Þá lagði Jesús hendur yfir hana og jafnskjótt gat hún rétt úr sér og lofaði Guð.
En samkundustjórinn reiddist því að Jesús læknaði á hvíldardegi og mælti til fólksins: „Sex daga skal vinna, komið þá og látið lækna ykkur og ekki á hvíldardegi.“
Drottinn svaraði honum: „Hræsnarar, leysir ekki hver ykkar á hvíldardegi naut sitt eða asna af stalli og leiðir til vatns? En þessi kona, sem er dóttir Abrahams og Satan hefur fjötrað full átján ár, mátti hún ekki leyst verða úr fjötrum þessum á hvíldardegi?“ Þegar Jesús sagði þetta urðu allir mótstöðumenn hans sneyptir en allt fólkið fagnaði yfir öllum þeim dýrðarverkum er hann gerði.