Þjóðhátíðardagurinn - 17. júní
Þjóðhátíðardagurinn - 17. júní
Lexía: Jer 32.38-41 Pistill: Róm 13.8-10 Guðspjall: Matt 7.7-12
Litur hvítur eða rauður.
Vers
Lofa Drottin, Guð þinn, fyrir landið góða sem hann hefur gefið þér. 5M.8.10b.
Bæn dagsins / kollektan
Almáttugi Guð sem hefur gefið okkur land þar sem við höfum frelsi til að játa þitt heilaga
nafn, tilbiðja þig og þjóna þér og leita ríkis íins. Við biðjum þig að kenna okkur að meta
þessa gjöf, varðveita hana og ávaxta til eilífra heilla fyrir okkur og niðja okkar. Fyrir son þinn
Jesú Krist bróður okkar og Drottin sem með þér lifir og ríkir í einingu heilags anda, einn
sannur Guð um aldir alda. Amen.
Lexía: Jer 32.38-41
Þeir skulu vera mín þjóð og ég skal vera þeirra Guð. Ég mun gefa þeim eitt hjarta og eina
breytni svo að þeir sýni mér lotningu alla tíð, þeim sjálfum til heilla og sonum þeirra eftir þá.
Ég geri við þá ævarandi sáttmála um að ég snúi mér ekki frá þeim heldur reynist þeim vel. Ég
legg guðsótta í hjarta þeirra svo að þeir víki aldrei frá mér. Ég gleðst yfir þeim og reynist
þeim vel og gróðurset þá í þessu landi í trúfesti, af heilum hug og öllum mætti.
Pistill: Róm 13.8-10
Skuldið ekki neinum neitt nema það eitt að elska hvert annað því að sá sem elskar náunga
sinn hefur uppfyllt lögmálið. Boðorðin: „Þú skalt ekki drýgja hór, þú skalt ekki morð fremja,
þú skalt ekki stela, þú skalt ekki girnast,“ og hvert annað boðorð er innifalið í þessari grein:
„Þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig.“ Kærleikurinn gerir ekki náunganum mein.
Þess vegna er kærleikurinn uppfylling lögmálsins.
Guðspjall: Matt 7.7-12
Biðjið og yður mun gefast, leitið og þér munuð finna, knýið á og fyrir yður mun upp lokið
verða. Því að hver sá öðlast sem biður, sá finnur sem leitar, og fyrir þeim sem á knýr mun upp
lokið verða. Eða hver er sá maður meðal yðar sem gefur barni sínu stein er það biður um
brauð? Eða höggorm þegar það biður um fisk? Fyrst þér sem eruð vond hafið vit á að gefa
börnum yðar góðar gjafir, hve miklu fremur mun þá faðir yðar á himnum gefa þeim góðar
gjafir sem biðja hann?
Allt sem þér viljið að aðrir menn geri yður, það skuluð þér og þeim gera. Því að þetta er
lögmálið og spámennirnir.
1 Ó, Guð vors lands! Ó, lands vors Guð!
Vér lofum þitt heilaga, heilaga nafn!
Úr sólkerfum himnanna hnýta þér krans
þínir herskarar, tímanna safn.
Fyrir þér er einn dagur sem þúsund ár
og þúsund ár dagur, ei meir,
eitt eilífðar smáblóm með titrandi tár
sem tilbiður Guð sinn og deyr.
:,: Íslands þúsund ár, :,:
eitt eilífðar smáblóm með titrandi tár
sem tilbiður Guð sinn og deyr.
2 Ó, Guð vors lands! Ó, lands vors Guð!
Vér lifum sem blaktandi, blaktandi strá.
Vér deyjum ef þú ert ei ljós það og líf
sem að lyftir oss duftinu frá.
Ó, vert þú hvern morgun vort ljúfasta líf,
vor leiðtogi' í daganna þraut
og á kvöldin vor himneska hvíld og vor hlíf
og vor hertogi' á þjóðlífsins braut.
:,: Íslands þúsund ár :,:
verði gróandi þjóðlíf með þverrandi tár
sem þroskast á Guðs ríkis braut.
T Matthías Jochumsson 1873, 1874 – Vb. 1912