3. sunnudagur eftir páska (Iubilate)
3. sunnudagur eftir páska (Iubilate)
Litur: Hvítur.
Vers vikunnar:
„Ef einhver er í Kristi er hann orðinn nýr maður, hið liðna varð að engu, nýtt er orðið til.“
(2Kor 5.17)
Litur hvítur
Bæn dagsins / kollektan
Drottinn Guð skapari alls sem er. Eins og þú vekur náttúruna alla til nýs lífs á hverju vori og
endurnýjar ásjónu jarðar, þannig viltu einnig endurnýja okkur og gjöra nýja jörð og nýjan
himinn þar sem réttlætið ríkir. Lífga okkur, börn þín, og vek okkur af svefndrunganum, gef
okkur kraft og kjark trúarinnar, svo að við þorum að trúa, og rísum upp til nýs lífs með þér,
fyrir Drottin Jesú Krist, bróður okkar og frelsara. Amen.
Þriðja lestraröð
Lexía Sak. 8. 16-18
Þetta er það sem ykkur ber að gera:
Segið sannleikann hver við annan
og fellið dóma af sanngirni
og velvilja í hliðum yðar.
Enginn yðar ætli öðrum illt í hjarta sínu
og fellið yður ekki við meinsæri.
Allt slíkt hata ég,
segir Drottinn.
Pistill Róm 8. 9-11
En þið eruð ekki á hennar valdi heldur andans sem í ykkur býr. En sá sem hefur ekki anda
Krists er ekki hans. Ef Kristur er í ykkur er líkaminn að sönnu dauður því að syndin er dauð
en andinn er líf sakir sýknunar Guðs. Ef andi hans sem vakti Jesú frá dauðum býr í ykkur þá
mun hann sem vakti Krist frá dauðum einnig lífga dauðlega líkami ykkar með anda sínum
sem í ykkur býr.
Guðspjallið Jóhs. 15.1-8
„Ég er hinn sanni vínviður og faðir minn er vínyrkinn. Hverja þá grein á mér sem ber ekki
ávöxt sníður hann af og hverja þá sem ávöxt ber hreinsar hann svo að hún beri meiri
ávöxt. Þér eruð þegar hrein vegna orðsins sem ég hef talað til yðar. Verið í mér, þá verð ég í
yður. Greinin getur ekki borið ávöxt af sjálfri sér nema hún sé á vínviðnum. Eins getið þér
ekki heldur borið ávöxt nema þér séuð í mér. Ég er vínviðurinn, þér eruð greinarnar. Sá ber
mikinn ávöxt sem er í mér og ég í honum en án mín getið þér alls ekkert gert. Hverjum sem
er ekki í mér verður varpað út eins og greinunum og hann visnar. Þeim er safnað saman og
varpað á eld og brennt. Ef þér eruð í mér og orð mín eru í yður, þá biðjið um hvað sem þér
viljið og yður mun veitast það. Með því vegsamast faðir minn að þér berið mikinn ávöxt og
verðið lærisveinar mínir.
Sálmur Sb 316
Kom þú, ó, Kristur,
kom þú í helgum anda,
kom, í brauði við borð þitt.
Sjá eins og kornið,
vaxið um víða akra
verður að einu brauði,
kallar þú saman,
Kristur, til starfa,
kirkjuna þína.
Lof sé þér, Drottinn.
Vínviðargreinar
vér erum börn þín, Drottinn,
vaxin af sama stofni.
Í einum kaleik,
uppskeru þinna þrúgna
safnar þú, Kristur, saman,
því að þú ert stofninn
þar sem vér vöxum;
þiggjum líf þitt
í bikar og brauði.
Kristján Valur Ingólfsson