Jóladagur – 25. Desember Fæðing Jesú - Orðið varð hold
Litur: Hvítur.
Vers vikunnar:
„Og Orðið varð hold, hann bjó með oss, fullur náðar og sannleika og vér sáum dýrð hans,“ (Jóh 1.14)
Kollekta:
Himneski faðir sem ert uppspretta allrar gleði og friðar og boðar okkur enn þann mikla fögnuð að okkur er frelsari fæddur: Gef að við veitum honum þá viðtöku að hann megi fagna okkur, þegar hann kemur í dýrð sinni og taka okkur með sér inn í friðarríki sitt, því að hann lifir og ríkir með þér í einingu heilags anda, einn sannur Guð um aldir alda.
Eða:
Eilífi Guð og faðir, þú sem með fæðingu þíns elskaða sonar gafst heiminum lífið sem er ljós mannanna: Veit okkur náð til þess að taka við honum í hjörtu okkar og verða þín börn í honum sem með þér lifir og ríkir í einingu heilags anda, einn sannur Guð um aldir alda.
Eða:
Við biðjum þig, almáttugi Guð, að láta nýja fæðingu einkasonar þíns frelsa okkur undan þungbæru oki syndarinnar. Því að hann lifir og ríkir með þér í einingu heilags anda, einn sannur Guð uma aldir alda.
Lexía: Jes 62.10-12
Gangið út, já, gangið út um hliðin,
greiðið götu þjóðarinnar.
Leggið, leggið braut,
ryðjið grjótinu burt,
reisið merki fyrir þjóðirnar.
Sjá, Drottinn hefur kunngjört
allt til endimarka jarðar:
„Segið dótturinni Síon,
sjá, hjálpræði þitt kemur.
Sjá, sigurlaun hans fylgja honum
og fengur hans fer fyrir honum.“
Þeir verða nefndir heilagur lýður,
hinir endurleystu Drottins,
og þú kölluð Hin eftirsótta,
Borgin sem aldrei verður yfirgefin.
Pistill: Tít 3.4-7
En er gæska Guðs, frelsara vors, birtist og elska hans til mannanna, þá frelsaði hann okkur, ekki vegna réttlætisverkanna, sem við höfðum unnið, heldur frelsaði hann okkur af miskunn sinni. Það gerði hann í þeirri laug endurfæðingar og endurnýjunar heilags anda sem hann lét ríkulega yfir okkur streyma sakir Jesú Krists, frelsara vors. Þannig erum við réttlætt fyrir náð hans og urðum í voninni erfingjar eilífs lífs.
Guðspjall: Jóh 1.1-14
Í upphafi var Orðið og Orðið var hjá Guði og Orðið var Guð. Hann var í upphafi hjá Guði. Allt varð til fyrir hann, án hans varð ekki neitt sem til er. Í honum var líf og lífið var ljós mannanna. Ljósið skín í myrkrinu og myrkrið tók ekki á móti því.
Maður kom fram, sendur af Guði. Hann hét Jóhannes. Hann kom til vitnisburðar, að vitna um ljósið og vekja alla til trúar á það. Ekki var hann ljósið, hann kom til að vitna um ljósið.
Hið sanna ljós, sem upplýsir hvern mann, kom nú í heiminn. Hann var í heiminum og heimurinn var orðinn til fyrir hann en heimurinn þekkti hann ekki. Hann kom til eignar sinnar en hans eigið fólk tók ekki við honum. En öllum þeim sem tóku við honum gaf hann rétt til að verða Guðs börn, þeim sem trúa á nafn hans. Þau urðu ekki til á náttúrulegan hátt né af vilja manns heldur eru þau af Guði fædd.
Og Orðið varð hold, hann bjó með oss, fullur náðar og sannleika og vér sáum dýrð hans, dýrð sem sonurinn eini á frá föðurnum.
Sálmur: 35
Heims um ból helg eru jól,
signuð mær son Guðs ól,
frelsun mannanna, frelsisins lind,
frumglæði ljóssins, en gjörvöll mannkind
:,:meinvill í myrkrunum lá. :,:
Heimi í hátíð er ný,
himneskt ljós lýsir ský,
liggur í jötunni lávarður heims,
lifandi brunnur hins andlega seims,
:,: konungur lífs vors og ljóss. :,:
Heyra má himnum í frá
englasöng: “Allelújá.”
Friður á jörðu, því faðirinn er
fús þeim að líkna, sem tilreiðir sér
:,: samastað syninum hjá. :,:
Sveinbjörn Egilsson