9. sunnudagur eftir þrenningarhátíð Gjafir andans / Góðir ráðsmenn
9. sunnudagur eftir þrenningarhátíð
Gjafir andans / Góðir ráðsmenn
Litur: Grænn
Vers vikunnar:
„Hver sem mikið er gefið verður mikils krafinn og af þeim verður meira heimtað sem meira
er léð.“ (Lúk 12.48b)
Bæn dagsins / kollektan
Drottinn Guð, gjafari allra góðra hluta, við erum oft óróleg í þessum heimi þar sem gróði eða
tap virðast skipta svo miklu máli og verðum hrædd um að tapa. Gefðu okkur kjark til að
reikna með þér. Gefðu okkur hlutdeild í auðlegð réttlætis þíns, svo að við eignumst lífið fyrir
Jesú Krist.
Þriðja textaröð.
Lexía Amos 8.4-7
Heyrið þetta, þér sem troðið fátæklingana niður
og gerið út af við þurfamenn í landinu.
Þér sem spyrjið: „Hvenær tekur tunglkomuhátíðin enda
svo að vér getum haldið áfram að selja korn?
Hvenær líður hvíldardagurinn hjá?
Vér viljum geta opnað kornhlöðurnar.
Vér ætlum að minnka kornmálið, hækka verðið og falsa vogina.
Þá getum vér keypt hina umkomulausu fyrir silfur
og fátæklinginn fyrir eina ilskó.
Það er úrgangskorn sem vér seljum.“
Drottinn hefur svarið við stolt Jakobs:
Aldrei nokkru sinni mun ég gleyma verkum þeirra.
Pistill Ef. 5. 8b-14
Eitt sinn voruð þið myrkur en nú eruð þið ljós í Drottni. Hegðið ykkur því eins og börn
ljóssins. – Því að ávöxtur ljóssins er einskær góðvild, réttlæti og sannleikur. – Metið rétt hvað
Drottni þóknast. Eigið engan hlut í verkum myrkursins, sem ekkert gott hlýst af, heldur flettið
miklu fremur ofan af þeim. Því að það sem slíkir menn fremja í leyndum er jafnvel
svívirðilegt um að tala. En allt það sem ljósið afhjúpar verður augljóst. Því að allt sem er
augljóst er í ljósi.
Því segir svo:
Vakna þú sem sefur
og rís upp frá dauðum
og þá mun Kristur lýsa þér.
Guðspjall Lk 16. 10-13
Sá sem er trúr í því smæsta er einnig trúr í miklu og sá sem er ótrúr í því smæsta er og
ótrúr í miklu. Ef ekki er hægt að treysta yður fyrir hverfulum auðæfum, hver trúir yður
þá fyrir sönnum auði? Og ef ekki er hægt að treysta yður fyrir eigum annarra, hvernig
getur Guð þá treyst yður fyrir því sem hann ætlar yður að eiga sjálf? Enginn þjónn getur
þjónað tveimur herrum. Annaðhvort hatar hann annan og elskar hinn eða þýðist annan
og afrækir hinn. Þér getið ekki þjónað Guði og mammón.“
Sálmur Sb 616
1. Þú opnar, Drottinn, hús þitt hér
og himin ljóssins trúin sér.
Í páskaljóma lýsir hann
með lífsins gjöf sem krossinn vann.
2. Og þú sem átt á öllu ráð,
send anda þinn með kraft og náð
að lífga, hreinsa hug og sál
og helga tungu, söng og mál.
3. Lát vakna kærleik, von og trú,
á vald þíns ríkis huga snú,
að húsi þínu hjartað ger
sem helgað verði einum þér.
4. Vér finnum ástarþelið þitt
sem þekkir týnda barnið sitt
og vilt það fá í faðminn þinn
svo fagni allur himinninn.
5. Guðs sonur, Jesús, orðið er
sem ást Guðs föður vitni ber
og heilags anda hjálp og mál
fær honum vist í trúrri sál.
6. Í lotningu vér lútum hér
í lífsins húsi einum þér
og færum lof sem framast má
vor fátæk önd og rómur tjá.
Sigurbjörn Einarsson.