Sjóðir kirkjunnar

Umsóknir í sjóði kirkjunnar

 

Kristnisjóður

Umsókn um styrk í sjóði kirkjunnar sem tilheyrðu kirkjumálasjóð og kristnisjóð, ekki umsókn í jöfnunarsjóð.

Umsóknarfrestur er til frá maí til september ár hvert.

Styrkir samkonar starf og verkefni sem áður tilheyrðu kirkjumálasjóð og kristnisjóði. Styrkir eru veittir til að styðja hvers konar starfsemi kirkjunnar til eflingar kristinni trú, svo sem útgáfu á hjálpargögnum í safnaðarstarfi og kristilegu fræðsluefni, enn fremur geta félög og stofnanir, sem vinna að mikilvægum verkefnum á kirkjunnar vegum fengið styrk.

 

Kynningar –, fræðslu- og útgáfusjóður Þjóðkirkjunnar (KFÚ) 

Stjórn KFÚ auglýsir eftir umsóknum um styrki til þeirra verkefna sem sjóðnum er ætlað að sinna samkvæmt skipulagsskrá fyrir sjóðinn nr. 173/2000, sbr. breytingu á þeirri skipulagsskrá nr. 1379/2023. Samkvæmt 4. gr. skipulagsskrárinnar er hlutverk sjóðsins að “styðja við og efla kynningar- og  fræðslustarf kirkjunnar svo og útgáfustarfsemi á því sviði.

Umsækjendur skulu gera skilmerkilega grein fyrir verkefni því sem sótt er um styrk til. Umsókn skulu fylgja þau gögn sem tilefni þykir vera til. Umsóknareyðublað er aðgengilegt hér.  

Umsóknarfrestur er til 31. maí 2025. Stefnt er að úthlutun fyrri hluta júní mánaðar og verður öllum umsækjendum svarað. 

Umsókn skal senda á netfangið kirkjan hjá kirkjan.is Í titillínu skal rita „Umsókn um styrk í Kynningar-, fræðslu- og útgáfusjóð kirkjunnar 2025. 

Skipulagsskráin með síðari breytingu er aðgengileg á vef kirkjunnar.

 

Reykjavík, 30. apríl 2025.

 

Umsóknir í Jöfnunarsjóð sókna er á þjónustuvef kirkjunnar

Umsóknarfrestur er frá maí til september ár hvert.