Trú.is

Gleðidagar

Gleðidagar eru þeir kallaðir dagarnir milli páska og hvítasunnu. Ekki vegna þess að brosvísitalan hækkar eða sælugengið stígur. Ekki vegna þess að við erum útlærð í því að setja upp mismunandi bros eftir því hverjar aðstæðurnar eru. Heldur vegna vegna þess að þá dveljum við áfram í skini páskaboðskaparins.
Pistill

Hleypidómar og kirkjunnar menn

Helga Vala Helgadóttir skrifar grein í 24 stundir þann 28. mars undir fyrirsögninni. „Hatur og hleypidómar biskupsins“. Tilefni greinarinnar er predikun biskups Íslands á páskadagsmorgunn og margt fleira. Helga Vala fer með stóryrðum gegn biskupi.
Pistill

Gengi viskunnar

Svo koma dagarnir þegar við reynum og gerum okkur grein fyrir að gáfur og snilli…allt það undraflóð af mætti mannsins er nóg…svo nóg að við missum sjónar af raunverulegum markmiðum lífsins. Viturt hjarta kallar á auðmýkt og vit til þess að ganga í sig, endurmeta, fyrirgefa, horfa út til lífsins ...
Pistill

Kirkjugestrisni

Sum hús eru undarlega köld enda þótt kynding og einangrun séu í fínasta lagi. Önnur heimili geta verið furðu hlý þótt napur gustur gnæði um glufur og skrúfað sé fyrir ofnana. Ekki bara tölurnar á hitamælunum sýna hversu hlý húsin eru. Þar skipta móttökurnar líka máli. Er tekið á móti manni með opnum örmum og brosandi vörum? Eða fær gesturinn á tilfinninguna að hann sé að trufla?
Pistill

Þorðu að efast

Þolir trú nokkuð efa? Er það ekki markmið trúmannsins að útrýma efanum? Eða eigum við kannski að efast um slíkan efa?
Predikun

Náð og friður

Náð er stutt orð, einsatkvæðisorð, sem felur þó svo mikið í sér. Það er náð þegar okkur er mætt með mildi en ekki hörku, þegar horft er framhjá misfellum, mistökum og misbrestum, þegar við erum meðtekin og elskuð þrátt fyrir það sem betur má fara.
Predikun

Hvaða fyrirmynd?

Ungur peyi í æskulýðsstarfinu í kirkjunni spurði mig um daginn hvort ég hefði virkilega áhuga á fótbolta, eftir að hafa séð mynd af prestinum í auglýsingu fyrir íslenska landsliðið. Honum fannst það einhvern veginn ekki alveg getað gengið upp að prestur gæti haft áhuga einhverju veraldlegu efni og þá allra síst íþróttum.
Pistill

Nágrannar og kynþáttafordómar

Þegar við skilgreinum nágranna okkar á einhvern hátt t.d. eftir stéttaskiptingu í samfélaginu, þjóðerni eða siðvenju, þá föllum við í fordóma og mismunun, þar sem skilgreining um nágranna okkar er sjálfkrafa skilgreining um það hverjir séu ekki nágrannar okkar. Því við eigum að vera nágrannar sjálf fremur en að velja okkur nágranna.
Pistill

Svörtu sólgleraugun hennar Mörtu

Stundum er ég ,,Marta”. Þá mæðist ég í mörgu. Þá hef ég áhyggjur af öllu sem úrskeiðis fer, gengur ekki nógu hratt eða ekki eftir mínu höfði. Hugmyndaflugið hleypur með mig í gönur og ég set á mig svörtu sólgleraugun og horfi dökkum augum á allt í kringum mig.
Pistill

Vestfirsk ferming

Að vera þrjá mánuði að ferma fimmtíu börn, er ekki til marks um einhvern hægagang heldur erum við með þessu að koma til móts við ólíkar kringumstæður hverrar fjölskyldu. Þegar fermingarnar dreifast á svona langan tíma þá hverfur líka mikið af þeirri spennu og markaðsvæðingu, sem stundum hefur verið fylgifiskur ferminga.
Pistill

Gangan til Emmaus – Lífsins ganga

Guðspjallið minnir okkar á að það að opna augu sín fyrir Jesú, það að hleypa Jesú inn í líf sitt, það opna hjarta sitt fyrir nálægð hans, er hluti af þessari flóknu göngu sem við þurfum öll að takast á hendur í lífinu er við reynum að finna lífi okkar merkingu og tilgang.
Predikun

Að boða líf

Þegar dóttir mín var lítil sagði ég oft við hana „Þú ert best af öllum“ eða „Ég elska þig meira en allt“. Oftar en ekki svaraði hún mér: „Ég veit það“. Henni fannst alveg sjálfsagt að mamma hennar elskaði hana meira en allt annað og að sjálfsögðu var hún best. Enginn hafði sagt henni annað eða látið hana finna annað.
Pistill