Fullorðinsfræðsla Hafnarfjarðarkirkju fer á fulla ferð að loknu sumarleyfi fimmtudaginn 3. september næstkomandi. Þá verður haldið námskeið sem ber heitið "Hamingjunámskeið Hafnarfjarðarkirkju".
Markmið námskeiðsins er að benda fólki á leiðir til að styrkja sig andlega, líkamlega og félagslega í því ástandi sem nú ríkir í þjóðfélaginu og að hjálpa fólki til þess að finna á ný og styrkja lífsgleðina. Hamingjunámskeiðið byggir á hjónanámskeiðum Hafnarfjarðarkirkju, en eru einstaklingsmiðuð og ætluð til að mæta einstaklingnum í þeirri kreppu sem nú gengur yfir land og þjóð. Grunnur þess eru 10 leiðir til lífshamingju sem farið er í gegnum og hafa reynst mörgum vel um land allt
Hamingjunámskeiðin og hjónanámskeiðin hafa verið haldin á 28 stöðum um land allt og á Norðurlöndunum. Á liðnu vori var námskeiðiða haldið í flestum söfnuðum Kjalarnessprófastsdæmis við húsfylli á mörgum stöðum
Námskeiðið hefst kl.20.00 í safnaðarheimili Hafnarfjarðarkirkju og stendur til ca.22.00. Það tekur aðeins eitt kvöld, er ókeypis og öllum opið. Allar nánari upplýsingar má fá í síma 891756