Hann á að vaxa en ég að minnka! (Jóh. 3.30)

Hann á að vaxa en ég að minnka! (Jóh. 3.30)

Hlutverk Þjóðkirkjunnar er fyrst og síðast að greiða Jesú Kristi veg á meðal fólks, að miðla orði hans og kærleika hans í verki, ekki síst til þeirra sem halloka fara í samfélagi manna. Það á að vera kirkjunni leiðarljós.
fullname - andlitsmynd Gunnar Sigurjónsson
07. febrúar 2012

GluggiÞessi orð mælti Jóhannes skírari og vísaði þar til Jesú Krists. Það var köllun Jóhannesar að beina sjónum fólks til hans. Jóhannes sá það fyrst og síðast sem hlutverk sitt að greiða Jesú sjálfum veg á meðal fólks. Allt sem hann sagði og gerði þjónaði að því marki.

Hlutverk Þjóðkirkjunnar er fyrst og síðast að greiða Jesú Kristi veg á meðal fólks, að miðla orði hans og kærleika hans í verki, ekki síst til þeirra sem halloka fara í samfélagi manna. Það á að vera kirkjunni leiðarljós. Öll störf hennar eiga að miða að því einu og þjóna að því marki. Þar birtist líka hin eiginlega kirkja, þar sem hugsanir, orð og breytni fólks mótast af vilja Jesú Krists.

Þjóðkirkjan er einnig öðrum þræði stofnun. Sem slík axlar hún margvíslega ábyrgð og hefur ríkum skyldum að gegna í samfélaginu. Í því felast áskoranir og vandi í senn. Sem stofnun má kirkjan margt læra og bæta. Hún þarf að ástunda heilbrigða stjórnsýslu. En umfram allt þarf hún að miða skipulag sitt að því að geta tekist sem best á hendur það hlutverk sem henni er ætlað að sinna.

Þjóðkirkja sem hagar störfum sínum með það að marki að gera veg Krists sem mestan á meðal fólks er kirkja á réttri leið. Sú kirkja er virðingarverð og eftirsóknarverð. Þeirri kirkju vil ég vinna það gagn sem mest ég má.

Það er mikilvægt fyrir Þjóðkirkjuna að við tökum öll höndum saman, Þjóðkirkjunni til heilla með því að gera veg Krists sem mestan meðal fólks.