Guð, sem ert ljós í myrkri. Þetta er dagurinn sem þú hefur gjört.

Guð, sem ert ljós í myrkri. Þetta er dagurinn sem þú hefur gjört.

Guð, sem ert ljós í myrkri. Þetta er dagurinn sem þú hefur gjört. Dagur hinnar miklu gleði. Þú kemur á móti okkur þegar við þreifum okkur áfram í myrkrinu og leiðir okkur til Jesú Krists sem er fagnaðarboði þessa heims og ljós huggunarinnar fyrir augum okkar að eilífu. Amen.
fullname - andlitsmynd Agnes Sigurðardóttir
25. desember 2023
Flokkar

Prédikun flutt á jóladag 2023 á RUV.  Jes. 62:10-12; Tít. 3:4-7; Jóh. 1:1-14.

Við skulum biðja:

Guð, sem ert ljós í myrkri.  Þetta er dagurinn sem þú hefur gjört.  Dagur hinnar miklu gleði.  Þú kemur á móti okkur þegar við þreifum okkur áfram í myrkrinu og leiðir okkur til Jesú Krists sem er fagnaðarboði þessa heims og ljós huggunarinnar fyrir augum okkar að eilífu.  Amen.

Náð sé með yður og friður frá Guði föður vorum og Drottni Jesú Kristi.  Amen.

3. sunnudag í aðventu fylltist Hallgrímskirkja í Reykjavík af fólki sem finnst gaman að syngja.  Yfirskrift viðburðarins var „Syngjum jólin inn.“  Um 100 manna kórsöngur fylli kirkjuskipið og fólkið á bekkjunum söng með svo undir tók í þessari stærstu kirkju landsins.  Bæta þurfti við stólum svo allir viðstaddir fengju sæti.  Það var bros á andlitum fólks sem út úr kirkjunni gekk í lok viðburðarins. Þessi viðburður er einn af mörgum í kirkjum landsins í aðdraganda jóla. 

Grindvíkingar söfnuðust saman í þessari sömu kirkju á þriðja degi eftir að hafa þurft að yfirgefa bæinn sinn.  Þar áttu þeir ljúfa kærleiksstund með Guði og hvert öðru á óvissutímum.  Nú er ljóst að Grindvíkingar halda ekki jólin heima.  Enn eitt eldgosið hefur hafist og á þessari stundu er ekki vitað um afleiðingar þess.

Við stjórnum ekki náttúruöflunum en við treystum vísindamönnunum til að fylgjast með og leiðbeina þeim sem taka ákvarðanir um rýmingar og líf fólks. 

Saga ein segir frá fornum sagnfræðingi í allt öðru landi þar sem náttúran hegðar sér ólíkt því sem er hér á landi.  Íbúarnir voru þjáir af sólarhitanum og þjáning þeirra fékk útrás með árásum á sagnfræðinginn.  Þetta endurtók sig hvern morgunn sem sólin reis upp.  Við hér á norðurslóðum heimsins gleðjumst við komu sólarinnar sem færir okkur birtu og yl. 

Ljósið er okkur kærkomið.  „Í honum var líf og lífið var ljós mannanna“ segir Jóhannes guðspjallamaður um barnið sem fæddist hin fyrstu jól. 

Ljósið er ljúft að sjá og hafa og það er alltaf ánægjulegt þegar sólin skín.  Sól réttlætisins skín í frásögum guðspjallamannanna af fæðingu Jesú.  Það eru ekki allir sem gleðjast yfir skini þeirrar sólar.  „Ljósið skín í myrkrinu og myrkrið tók ekki á móti því“ segir í guðspjallinu.  Enn er það svo að til að sjá ljósið og meðtaka það þá þarf að stilla hugann til að vera móttækilegur fyrir það.  Þá sem og nú tekur fólk á móti Kristi eða hafnar honum. 

Nú er jóladagurinn þegar kristið fólk um allan heim safnast saman í kirkjum sínum til að heyra boðskap jólanna, syngja saman og biðja saman.  Fréttir eru sagðar af boðskap helstu kristinna trúarleiðtoga heims og Heims um ból er sungið á fjölmörgum tungumálum. 

Í gærkveldi heyrðum við frásögu Lúkasar guðspjallamanns af fæðingu Jesú. Í dag höfum við fengið að heyra aðra frásögn og allt öðru vísi af Orðinu sem varð hold.  Jóhannes guðspjallamaður sá er ritaði þann texta var undir áhrifum af grískum hugsunarhætti og framsetningu.  Hann talar um Orðið með stórum staf sem varð hold.  Orðið lífgar heiminn.  Orð Guðs skapaði líf og ljós.  Lífið er dýrmætt það verður okkur ekki síst ljóst þegar við kveðjum þau sem okkur voru kær.  Sérhver manneskja ber með sér neista af lífi og ljósi Guðs og það hefur afleiðingar fyrir siðferði okkar.

Stundum er sagt að orð séu til alls fyrst.  Þau skapa eitthvað nýtt.  Með orðum tjáum við okkur, gefum hlutum nafn og öllu því sem í kringum okkur er.  Við gefum börnum nafn og leitum að orði ársins sem endurspeglar umræðuna í þjóðfélaginu á ári hverju. 

Jólin boða kærleika, elsku Guðs til manna.  Flestar manneskjur reyna elsku til sín og finna elsku til annarra manna.  Sjaldan birtist elskusemi mannfólksins jafn skýrt og í aðdraganda jóla þegar við hugsum til vina og ástvina, sendum gjafir og kveðjur.  Sjaldan birtist elskusemi og umhyggja fyrir þeim sem eru þurfandi skýrar en í aðdraganda jóla. 

Hjálparstarf kirkjunnar styður fjölda manns fyrir jólin með inneignarkortum og gjöfum.  Inneignarkortin gefa þiggjendum tækifæri til að velja sjálf jólamatinn eða hvað annað sem þau vilja og þurfa.  Þannig eru þau ekki bara þiggjendur heldur einnig gerendur í eigin lífi og það er það sem flestir vilja að geta sjálfir stjórnað lifi og gjörðum.

Því miður er það ekki svo í heimi hér að allir séu til þess bærir.  Á meðal okkar er fólk sem ræður ekki yfir eigin lífi heldur stjórna efni lífi viðkomandi.  Það er mikið böl sem fylgir neyslu áfengis og fíkniefna, bæði fyrir viðkomandi einstakling og fjölskyldu hans og samfélagið allt.  Bæn mín er sú að þau sem ánetjast hafa fíkninni og vilja losna undan henni fái til þess styrk og hjálp.  Þá mun ljósið skína og myrkrið hopa fyrir því. 

Saga ein fjallar um kærleikstré. Það stóð nálægt Betlehem fyrir meira en 2000 árum.  Það stóð við bæinn sem Jesús fæddist. Undir þessu tré fengu flóttamenn skjól.  Undir ægivaldi Heródesar flúði unga parið með nýfæddan soninn.  Eins og guðspjöllin greina frá boðaði Heródes að lífláta skyldi öll sveinbörn í landinu upp að ákveðnum aldri.  Hann hafði frétt af því að konungur væri fæddur í Betlehem og ekki vildi hann missa völdin í hans hendur.  María og Jósef flúðu með barnið Jesú til Egyptalands og á leiðinni þangað fengu þó skjól hjá trénu sem nefndist kærleikstré.     

Heródes sendi hermenn sína til að finna barnið nýfædda sem hirðarnir fengu fyrstir að sjá fyrir utan foreldrana.  Fólkið á flóttanum var þreytt og mætt eins og gefur að skilja.  Gamla kærleikstréð skýldi þeim fyrir hermönnunum og þau sluppu frá útsendurum Heródesar.  Ef ekki hefði farið vel hefði þessi flótti getað breytt sögunni, sögu mannkyns.  Litli drengurinn var kominn til að frelsa heiminn, til að veita birtu og yl inn í líf okkar. 

Aldrei hafa fleiri í heiminum verið á flótta, svangir, þjáðir eða óhamingjusamir.  Gamla tré gat hjálpað og það getum við einnig með því að taka á móti ljósinu sem lýsir dimma daga og nætur.  Við getum fundið gleði og glatt aðra og breytt heiminum með orðum okkar og gjörðum.  Við getum verið eins og kærleikstréð sem veitir skjól fyrir grimmd heimsins. 

Megi boðskapur jólanna um elsku til Guðs og manna taka sér bústað í hjörtum okkar og hugsunum því „Orðið varð hold, hann bjó með oss, fullur náðar og sannleika og vér sáum dýrð hans, dýrð sem sonurinn eini á frá föðurnum“ segir í jólaguðspjalli Jóhannesar.  Guð er með okkur.  Guð gefi okkur náð til að reyna það í dag og alla daga, í Jesú nafni.

Gleðilega hátíð.

Dýrð sé Guði föður og syni og heilögum anda, svo sem var í upphafi er og verður um aldir alda.  Amen.

Takið postullegri kveðju:

Náðin Drottins vors Jesú Krists, kærleiki Guðs og samfélag heilags anda sé með yður öllum.  Amen.