Slagur eða samtal?

Slagur eða samtal?

Biskupsefnin eru mannval og hafa lagt mikið til kirkjunnar og munu eflaust leggja fallega og ríkulega á borð á komandi vikum. Ég sé enga ástæðu til eða þörf á að biskupskjörið verði meiðandi eða skemmandi. Þvert á móti held ég að biskupskjörið geti orðið kirkjunni mjög gefandi, nærandi og gleðjandi.
fullname - andlitsmynd Sigurður Árni Þórðarson
29. janúar 2012

Úr Vallakirkju. Mynd SÁÞÉg hitti mann fyrir helgi sem spurði mig: “Er það ekki vont fyrir þig að mótframbjóðandi skuli hafa komist í viðtal í blað í dag?” Ég staldraði við og hugsaði um spurninguna en fann ekki til að það gæti skaðað mig á neinn máta eða verið vont.

Ég tók meðvitaða ákvörðun um að vera með í kjöri til biskupsþjónustu. En ég tók ekki ákvörðun um að vera í einhverjum slag upp á líf og dauða. Mér leiðast slagsmál. Ég gef kost á mér af því að ég elska kirkjuna og ber hag hennar fyrir brjósti. Og ég geri ráð fyrir að hin biskupsefnin, sem bjóða fram krafta sína, elju, anda og tíma geri það af svipuðum ástæðum.

Þess vegna er ég algerlega ósammála sr. Auði Eir Vilhjálmsdóttur sem í örviðtali Smugunni segir: ,,Ég held að baráttan um biskupsembættið verði hörð og kosningar og flokkadrættir sem þeim fylgja eru vondar fyrir kirkjuna og eyðileggjandi.”

Biskupsefnin eru mannval og hafa lagt mikið til kirkjunnar og munu eflaust leggja fallega og ríkulega á borð á komandi vikum. Ég sé enga ástæðu til eða þörf á að biskupskjörið verði meiðandi eða skemmandi. Þvert á móti held ég að biskupskjörið geti orðið kirkjunni mjög gefandi, nærandi og gleðjandi.

Hópurinn sem tekur þátt í valinu og stuðningsmenn leggja til margar hugmyndir, ræða málin, svara spurningum og vekja athygli á málum kirkjunnar og möguleikum. Jú, orð geta fallið sem geta sært. En mér sýnist líklegra að kosningaferlið geti orðið ávaxtaríkt og til mikils góðs. Kirkjan, biskupsefnin og stuðningsmenn geta ásett sér að efna til uppbyggjandi ferlis í þágu kirkjunnar. Að kjósa biskup á að vera til eflingar og undirbúningur kosningar á að vera í sama anda. Hvernig væri að leyfa kosningaferlinu að einkennast af gleði? Biskupskjör getur orðið kirkjunni gæfutími, upphaf nýs tíma.