Horfðu inn í himininn

Horfðu inn í himininn

Við erum hér af því að við trúum á Jesú… og treystum á fyrirheitið sem okkur er gefið… en eins og með langhlaupin þá þarf að rækta trúna í hjartanu, næra hana með guðsorði og halda persónulegu sambandi t.d með bæn, beiðni eða þakkargjörð… það tekur tíma og þarf aldrei eins mikla þolinmæði og þrautseigju og þegar allt gengur vel hjá okkur… því þá vill sambandið dofna.

Slm 102.12-29, 1Jóh 5.13-15 og Jóh 14.12-14

Náð sé með yður og friður frá Guði vorum og Drottni Jesú Kristi.

Í dag er hinn almenni bænadagur og lestrar dagsins bera þess vitni… Fyrri lesturinn úr sálmi 102 minnir okkur á að jarðvistin er takmörkum háð… sálmaskáldið segir liðið á ævina, dagarnir sem síðdegisskuggi og líkaminn visni eins og gras… EN… þú, Drottinn, ríkir að eilífu… segir hann…

Þegar við erum ung hugsum við ekki um efri árin en á efri árum sjáum við kannski eftir að hafa ekki farið betur með þau ár sem við köllum ,,bestu árin okkar”… En ef heilsan er góð – þá eru öll ár í raun… bestu árin okkar. Geymum ekki drauma okkar undir koddan-um, vinnum heldur stöðugt að því að láta þá rætast… alla okkar ævi, við verðum aldrei of gömul til að njóta þess að lifa, aldrei of gömul til að vilja finna hamingjuna, eiga frið í sálinni  og trú í hjartanu.

Við höfum takmarkaðan tíma… og sálmaskáldið talar af tilhlökkun… um það þegar þjóðirnar muni koma saman og tilbiðja Drottinn í Jerúsalem… og þjóna Drottni um alla eilífð… Þegar borgin Jerúsalem er nefnd hugsum við flest til Jerúsalem í Ísrael, borgarinnar sem í dag, er skipt í þrjá hluta, þ.e. milli þriggja trúarbragða og þungvopnaðir hermenn gæta borgarhlutanna… en sálmaskáldið er ekki að hugsa um þessa borg..  hann hugsar til hinnar nýju Jerúsalem sem Op segir að ,,komi af himni ofan frá Guði”[1]

Jóhannes kallar hana: borgina helgu, hina nýju Jerúsalem”[2] Þetta er NÝ borg… 
Þegar hin nýja Jerúsalem stígur niður… munu þjóðirnar óttast nafn Drottins og allir konungar jarðarinnar ( munu óttast ) dýrð Drottins … á bakvið hugtakið að ,,óttast Guð” er aðeins önnur merking en við erum vön… nema..  ef við skyldum vera að tala um óttablandna virðingu… þ.e. að veita lotningu/upphefja/ eða viðurkenna Guð sem Guð alheimsins. Allt sem lifir á þessari jörð er reglulega endurnýjað… hugsið ykkur á uþb 100 árum er öllu mannfólki jarðarinnar skipt út… það kemur alltaf maður í manns stað á allri jörðinni…

Sálmaskáldið sagði að ,,allt” myndi líða undir lok…  en börn þjóna þinna (sagði hann) munu búa óhult og niðjar þeirra standa stöðugir fyrir augliti þínu… því Ríki Guðs varir að eilífu… þó það sé orðað þannig að menn óttist Guð, þá er það einmitt þannig að fólk Guðs hefur EKKERT að óttast.  Við getum algerlega treyst Guði fyrir okkur og þeim aðstæðum sem við lendum í…  og á langri ævi lendum við í ýmsum aðstæðum… Og allar aðstæður kenna okkur eitthvað nýtt. Kannski vita einhverjir hér að ég hef tekið þátt í mörgum hlaupum erlendis, aðallega maraþonum og eignast vini út um allt. Einu sinni vorum við hjónin í Flórida og ákváðum að fara í kirkju hjá prédikara, Freddie Filmore sem hafði komið í mörg ár til Íslands…

Þegar við komum inn í kirkjuna vorum við leidd á fremsta bekk… við vorum eina hvíta fólkið í kirkjunni, jafnvel í hverfinu… þegar Freddie byrjar að tala kynnir hann okkur og spyr svo hvort ég vilji segja eitthvað…  ég hafði ekki búist við þessu en fannst ég verða að segja eitthvað… þetta var á sunnudags-kvöldi, ég hafði hlaupið maraþon um morgun-inn… svo auðvitað talaði ég út frá því… Og sagði eitthvað á þessa leið:

Lífið er svolítið líkt langhlaupi… það þarf að þjálfa upp þolið… maður byrjar á stuttum vegalengdum, lærir hvað líkaminn þolir mikið álag… lærir að hugsa um rétta næringu, drykk og reglulega hvíld… Keppni við aðra getur haft góð áhrif… en getur líka brotið keppnisandann niður… það getur verið hættulegt að bera sig saman við aðra… OG taki maður þátt í keppni, þarf að varast að láta hraða annarra hafa áhrif á sig.. svo maður sprengi sig ekki á miðri leið, við þurfum mis-langan tíma í öllum vegalengdum, förum mishratt, þolum misjafnt álag, þurfum kannski að spara orkuna, hægja á okkur ef við höfum farið of hratt, endurmeta… og kannski þarf að stoppa um stund á drykkjarstöð.
Brekkur, bæði upp og niður, geta verið táknmyndir fyrir erfiðleika. Maður þarft að hafa vilja/þrautseigju til að þrauka á leiðarenda, kannski breyta um tækni, vinna úr sársauka, jafna sig af eymslum eða vera jafnvel lemstraður þegar þú kemst á leiðarenda… Markið er endalokin á hlaupinu. Þar færðu verðlaunin fyrir allt erfiðið…  EN ef þú ert að keppa máttu aldrei horfa á marklínuna því þá byrjar heilinn, að láta þig draga úr ferðinni til þess að þú stoppir nákvæmlega þar, á línunni… NEI… þú átt að horfa langt framhjá markinu… lengra fram á veginn og hlaupa á fullri ferð yfir línuna.

Þannig er það með Ríki Guðs, við þurfum að horfa lengra en á marklínuna í þessu lífi… við þurfum að horfa inn í himininn… sjá borgina helgu fyrir okkur… þar sem allt verður eilíft… eins og Páll postuli sagði: Þar fáum við sigursveiginn… þar fáum við ,,verðlaunin” fyrir trúfesti okkar við Guð… og fyrir trúna fáum við styrk til að takast á við lífið sjálft… og það besta er að við fáum öll sömu verðlaun… eilíft líf…

Í seinni ritningarlestrinum í dag… skrifar Jóhannes:  Þetta hef ég skrifað ykkur sem trúið á nafn Guðs sonar til þess að þið vitið að þið eigið eilíft líf. Og þetta er traustið sem við berum til hans: Ef við biðjum um eitthvað eftir hans vilja, þá bæn-heyrir hann okkur…

Við erum hér af því að við trúum á Jesú… og treystum á fyrirheitið sem okkur er gefið… en eins og með langhlaupin þá þarf að rækta trúna í hjartanu, næra hana með guðsorði og halda persónulegu sambandi t.d með bæn, beiðni eða þakkargjörð… það tekur tíma og þarf aldrei eins mikla þolinmæði og þrautseigju og þegar allt gengur vel hjá okkur… því þá vill sambandið dofna. Í guðspjallinu segir Jesús: Sannlega, sannlega segi ég yður: Sá sem trúir á mig mun einnig gera þau verk sem ég geri.

Og það er einmitt það sem fólk segir… trúin breytir þeim, hefur áhrif á líf þeirra beint og óbeint. Margir segjast hafa meiri ró í hjarta, hafa innri frið, hafa meiri samúð með öðrum, eiga auðveldara með að samgleðjast öðrum og sé almennt þakklátara fyrir það sem lífið gefur… Þetta er vellíðan sem Guð gefur okkur í gegnum trúna og traustið á hann.
Í dag er hinn almenni bænadagur… biðjum þess að fleiri fái að upplifa þetta trúartraust.

Dýrð sé Guði, föður og syni og heilögum anda. Svo sem var í upphafi er og verður um aldir alda. Amen

[1] Op 3:12 [2] Op 21:2