Viðhorf kristins fólks gegn fordómum

Viðhorf kristins fólks gegn fordómum

Það er nauðsynlegt og mikilvægt að kristin ungmenni, sem eru á leiðinni að móta skoðun sína um samfélagsmál og alheimsmál í samræmi við trú sína, takist á við að hugsa um fordóma og mismunun út frá trúarlegu sjónarmiði og tjái sig um málefnið.
fullname - andlitsmynd Toshiki Toma
18. mars 2010

Unglingar gegn fordómum - frá viðburði í Smáralind

Fyrir kristið fólk er trúin grunnur alls lífsins. Trú er ekki eins og verkfæri sem maður tekur út úr skúffunni aðeins þegar nauðsyn ber til. Því kristileg menntun stefnir því að ungmenni haldi í trú sinni í öllum kjörum lífsins í samræmi við aðra nauðsynlega og viðunandi skynsemi mannlífsins.

Hins vegar virðist það hafa tíðkast víða í samfélaginu að fólk leitar ekki til trúarinnar þegar um fordóma og mismunun er að ræða. Það kýs að lyfta upp mannréttindum og jafningjafræðum og reynir þar að finna málstað sínum stoð til að mótmæla fordómum eða mismunun fremur en að snúa sér til trúarinnar. Fordómar og mismunun hér eru ekki afmörkuð í ákveðið svið eins og kynþáttafordóma eða kynjamismunun, heldur þýða þau yfirleitt alls konar fordóma og mismunun sem skaðar mannréttindi og frelsi.

Hver er ástæða þess? Þýðir þetta fyrirbæri að trú á Guð og Jesú Krist í einingu heilags anda hafi ekkert samband við mótstöðu fordóma og mismunar og geti því ekki skaffað mönnum nokkurn málstað til að vera á móti þeim?  Nei, það er alls ekki svo (þó að ég viðurkenni vel þörf á að skoða mismunun sem stafar af trúarlegum fordómum og ræða hana).

Vandinn er frekar e.t.v. sá að annað hvort hafa leiðtogar kirkjunnar ekki dýpkað skilning á  málinu eða þeir hafa ekki tekið frumkvæði í mótmælum á eigin forsendum.

Hvort sem er, virðist það nauðsynlegt og mikilvægt að kristin ungmenni, sem eru á leiðinni að móta skoðun sína um samfélagsmál og alheimsmál í samræmi við trú sína, takist á við að hugsa um fordóma og mismunun út frá trúarlegu sjónarmiði og tjái sig um málefnið.

Líklega með því að hugsa um eftirfarandi atriði frá trúarlegu sjónarmiði, halda umræðu um þau og tjá skoðun sína á sýnilegan máta, læra ungmenni að losna við óþarfa aðgreininga meðal manna og einnig að lifa lífi sinu á grundvelli trúarjátninga í veröldinni.

  • Hvað er grundvallaratriði sem aðgreinar ákveðinn hóp manna frá öðrum mönnum? Er aðgreining hin sama og mismunun?
  • Hver er Biblíulegur skilningur á því “að vera öðruvísi” en aðrir (sem eru í flestum tilfellum meirihluti)? Jesús og lærisveinar hans voru  ,,öðruvísi“ en meirihlutinn.
  • Þegar þú mismunar fólki eða þér er mismunað af fólki, er það gert af ærinni ástæðu?
  • Þegar þú ert á móti fordómum og mismunun vegna trúar þinnar, hvernig ætlar þú að deila skoðun þinni með öðrum í samfélaginu?

Vikan frá og með 14. mars til 21. verður Evrópuvika gegn kynþáttamisrétti. Í tilefni af henni verða sérstakir viðburðir ungmenna haldnir 18. mars á höfuðborgarsvæðinu, á Akureyri, Ísafirði og í Reykjanesbæ. Atburðirnir eru í samvinnu Mannréttindaskrifstofu Íslands, þjóðkirkju, Rauðakross Íslands, SGI búddistafélags, Hjálpræðishersins o.fl. Viðburðirnir byggjast á mannúðlegu viðhorfi sem er sameinleg forsenda og ég tel það sé sannarlega mikilvægt fyrir ungt fólk að deila slíku tækifæri með öðrum. Hins vegar hlýtur sérhver þátttakandi að vera með á eigin forsendum hvað varðar fordóma og misrétti í samfélaginu og það á að vera svo að mínu mati.

Ég óska þess að sem flest ungmenni í samfélaginu, ekki síst frá kirkjulegu umhverfi, taki þátt í þeim viðburðum. Og jafnframt óska ég að ungt fólk frá kirkjunni notfæri sér tækifærið til að úthugsa skilning sinn á málinu á eigin forsendum og dýpka.