Flóttafólk og aðrir hælisleitendur

Flóttafólk og aðrir hælisleitendur

,,Ég verð þung í brjósti og döpur við þá staðreynd. Ég er hrædd um að ég verði skilin ein eftir,“ sagði hún og grét.
fullname - andlitsmynd Toshiki Toma
12. september 2013

Ríkisstjórnin er búin að samþykkja tillögu um móttöku flóttamanna næstu tvö árin. Fréttir herma að konum sem eru í hættu í Afganistan og samkynhneigðum frá Íran eða Afganistan muni boðið nýtt líf hérlendis.

Þetta er tvímælalaust góð ákvörðun hjá ríkistjórninni og gott framtak íslensku þjóðarinnar. Mig langar að fagna þessum fréttum og klappa fyrir fólkinu sem átt hefur frumkvæði að málinu.

En stundum virðir mér sem ,,flóttafólk“ skiptist í tvennt: annars vegar eru ,,góðir flóttamenn“ sem ríkistjórnir bjóða til Íslands og hins vegar eru ,,vondir flóttamenn“ sem venjulega eru kallaðir ,,hælisleitendur“. Það virðist sem síðarnefndi hópurinn hafi á sér neikvæðara orð í samfélaginu.

En flóttamenn sem koma hingað gegnum kerfi Sameinuðu Þjóðanna og hælisleitendur sem lenda á Íslandi eru hvort tveggja „flóttamenn“ sem hafa þurft að yfirgefa heimaland sitt af illviðráðanlegum ástæðum. Þeir voru leiddir í annan veg af ástæðum eða örlögum sem þeir oftast réðu ekki við.

Ég þekki nokkra hælisleitendur á Íslandi sem ég get kallað vini mína. Mig langar að nefna sérstaklega hælisleitendur sem eru búnir að eyða mörgum árum á Íslandi. Þeir verða að endurnýja tíma-og réttindabundið leyfi árlega og eru samt ekki ennþá í sjúkratryggingarkerfinu, þar sem þeir mega ekki eiga lögheimili. Því hafa þeir ekki aðgang að velferðarþjónustunni.

Tíu ár, átta ár eða sex ár eru fjöldi ára sem ég get nefnt núna. Samkynhneigð manneskja er líka á meðal þeirra sem og kona. Hvað ætlar ríkistjórnin sér að gera fyrir þessa einstaklinga? Það hlýtur að vera einhver hindrun sem kemur í veg fyrir að niðurstaða komist í mál þessara einstaklinga en þeir segjast engu að síður ekki vita hver sú hindrun er.

Konan í þessum hópi sagði við mig um daginn: „Margt flóttafólk sem kom til Íslands eftir komu mína er núna með dvalarleyfi. Í hreinskilni sagt verð ég þung í brjósti og döpur við þá staðreynd. Ég er hrædd um að ég verði skilin ein eftir,“ sagði hún og grét.

Kæra fólk sem starfar í stjórnvaldsgeiranum. Mig langar að vekja athygli ykkar á þessum hælisleitendum og biðja ykkur innilega um að sýna þeim mannlegan skilning eins og þið hafið sýnt við móttöku nýrra og væntanlegra flóttamanna.