Orsök og afleiðing

Orsök og afleiðing

Frammi fyrir deginum í dag erum við spurð um lífsskoðun okkar, gerðir og afleiðingar. Skiptir nokkru máli hvað við gerum eða látum ógert, hvort við segjum satt eða ljúgum, prettum eða svíkum? Getur verið að framkoma okkar hvers um sig og saman sem þjóðar sé tengd lögmáli himins og jarðar og lífsins sem er hverju sinni hreyfing.
fullname - andlitsmynd Halldór Gunnarsson
02. mars 2009

Frammi fyrir deginum í dag erum við spurð um lífsskoðun okkar, gerðir og afleiðingar. Skiptir nokkru máli hvað við gerum eða látum ógert, hvort við segjum satt eða ljúgum, prettum eða svíkum? Getur verið að framkoma okkar hvers um sig og saman sem þjóðar sé tengd lögmáli himins og jarðar og lífsins sem er hverju sinni hreyfing.

Hvernig birtist þetta lögmál? Það er í sinni sköpun og svörun gagnvart öllu sem við sjáum og greinum. Hreyfing jarðar í sólkerfi okkar, árstíðirnar, dagur og nótt, þurrkurinn og regnið, jafnvægi milli þess sem við tökum og eyðum í sáningu og uppskeru.

Þetta tengist sannarlega lífi okkar sjálfra þar sem við erum alla ævi að reka okkur á þetta lífslögmál orsaka og afleiðinga, að þegar við gerum rétt, grær í kring um okkur og við njótum hamingju, jafnvel einnig í erfiðleikum eða sorg, en þegar við gerum rangt, kemur afleiðingin á móti okkur með einum eða öðrum hætti.

Inn í þennan heim orsaka og afleiðinga kom Hann sem sagði: Ég er, - ég er Guðs sonur, - ég er góði hirðirinn, - ég er dyrnar, - ég gef ykkur nýtt boðorð að elska og virða hvort annað og ykkur sjálf og því til viðmiðunar sé gullna reglan: “Allt sem þér því viljið að aðrir menn gjöri yður, það skulið þér og þeim gjöra.”

Freistingarnar sem mæta okkur öllum komu til hans, að hagnast á óheiðarlegan hátt, bjóða allri áhættu birginn og það að hugsa aðeins um veraldleg gæði. Hann sigraði þessar freystingar ásamt þeirri síðustu að deyja á krossi vegna þess að hann brást ekki lífi sínu og köllun.

Móse, brást ekki heldur. Hann var kallaður til að leiða þjóð sína burt frá Egyptalandi til fyrirheitna landsins, en reyndi að komast hjá því og sagði við Guð: “Þegar ég kem til Ísraelsmanna og segi við þá: Guð feðra yðar sendi mig til yðar og þeir segja við mig: Hvert er nafn hans. Hverju skal ég þá svara þeim? Þá sagði Guð: Ég er sá sem ég er.”

Við erum hvert um sig kölluð til lífs og ábyrgðar með starfi á hverri stundu sem er að líða hjá. Við erum, þess vegna eigum við andardrátt, hjartslátt og hugsun í lögmáli sköpunar orsaka og afleiðinga, sem við komumst aldrei undan og verðum að takast á við.

Nú þurfum við að gera það sem þjóð, með sameinuðu átaki samhjálpar, vitandi að við eigum alla möguleika með gjöfult land og frjósamt, ásamt því að fylgja leiðsögn Hans og standa vörð um það sem rétt er með kærleikanum, sem öfundar ekki, hreykir sér ekki upp, leitar ekki síns eigin, reiðist ekki, er ekki langrækinn, gleðst ekki yfir óréttvísinni, en samgleðst sannleikanum.