Sjálfsvíg - hvað svo?

Sjálfsvíg - hvað svo?

Vart er hægt að hugsa sér þyngra áfall í lífinu en þegar einhver sem maður elskar ákveður að stytta sér aldur. Samkvæmt upplýsingum frá landlæknisembættinu eru sjálfsvíg á Íslandi um 12,8 sjálfsvíg á hverja 100.000 íbúa.
fullname - andlitsmynd Halldór Reynisson
11. nóvember 2010

Vart er hægt að hugsa sér þyngra áfall í lífinu en þegar einhver sem maður elskar ákveður að stytta sér aldur. Samkvæmt upplýsingum frá landlæknisembættinu eru sjálfsvíg á Íslandi um 12,8 sjálfsvíg á hverja 100.000 íbúa. Þessi tala sveiflast reyndar mikið milli ára og er hér miðað við nokkurra ára meðaltal. Þetta þýðir að þrír til fjórir einstaklingar að meðaltali svipta sig lífi í hverjum mánuði á Íslandi samkvæmt áðurnefndum upplýsingum. Það er mun fleira en ferst í umferðarslysum á Íslandi. Þannig lést árið 2008 að meðaltali einn í umferðinni í hverjum mánuði.

Það er varlegt að áætla að hvert sjálfsvíg snerti með þungbærum hætti tíu manns. Á hverju ári eru þvi nokkur hundruð Íslendingar sem þurfa að takast á við þá erfiðu reynslu að einhver þeim nákominn ákvað að enda líf sitt. Þá eru ótaldir allir þeir sem áður hafa gengið í gegnum slíkt áfall. Meðal þeirra sem sinna sálgæslu vegna sorgar og áfalla hefur verið sagt að skyndilegt ótímabært andlát geri nánustu ættingja að 50 % öryrkjum næstu misserin á eftir.

Ný dögun, samtök um sorg og sorgarviðbrögð hefur lengi unnið að því að styðja þau sem þurft hafa að takast á við sjálfsvíg ástvina eða ættingja. N.k. fimmtudagskvöld 11. nóvember heldur sr. Svavar Stefánsson fyrirlestur á vegum Nýrrar dögunar um sjálfsvíg og þá sorgarúrvinnslu sem þarf að fylgja í kjölfarið. Sr. Svavar hefur áratuga reynslu svo og menntun í sálgæslu í kjölfar sjálfsvíga. Fyrirlesturinn hefst kl. 20:30 og er í safnaðarheimili Háteigskirkju og er öllum opinn. Þá verður einnig við sama tækifæri skráð í stuðningshóp fyrir aðstandendur en hann hefst mánudaginn 15. nóvember.