Innsetning forseta Íslands

Innsetning forseta Íslands

Á þessu ári minnumst við þess að 80 ár eru liðin frá stofnun lýðveldis á Íslandi. Þá lauk erfðafestu þjóðhöfðingja hér á landi því fram að þeim tíma var Danakonungur lengst af þjóðhöfðingi landsins.
fullname - andlitsmynd Agnes Sigurðardóttir
01. ágúst 2024

Innsetning forseta Íslands 1. ágúst 2024.  Matt. 7:24-27. 

 

Náð sé með yður og friður, frá Guði föður vorum og Drottni Jesú Kristi.  Amen.

Á þessu ári minnumst við þess að 80 ár eru liðin frá stofnun lýðveldis á Íslandi. Þá lauk erfðafestu þjóðhöfðingja hér á landi því fram að þeim tíma var Danakonungur lengst af þjóðhöfðingi landsins.  Þjóðin hefur nú gengið að kjörborðinu og kosið sér nýjan forseta og þess vegna erum við saman komin hér í dag.  Mikilhæf kona hlaut flest atkvæði og nú ber svo við í fyrsta sinn í  sögu landsins að maki forseta er karl.  Ég bið þér nýkjörnum forseta Halla Tómasdóttir farsældar í mikilvægu embætti.  Einnig bið ég eiginmanni þínum Birni Skúlasyni og fjölskyldunni allri blessunar því ég veit að þegar einn fjölskyldumeðlimur þjónar heilli þjóð þá getur það reynst álag á þau öll sem tengjast viðkomandi ástúðarböndum. 

Stundin hér í Dómkirkjunni í dag er fyrirbænar- og þakkarstund.  Hún minnir okkur líka á samfylgd þjóðar og kristinnar trúar í þúsund ár.  Minnir okkur á þau kristnu gildi sem hafa mótað hugsunarhátt þjóðarinnar og lagt grunn að lagasetningu og viðmiðunum í samskiptum fólks.

Fyrir nokkrum árum kom ungur maður frá Malaví til landsins á vegum Hjálparstarfs Þjóðkirkjunnar og fór um landið og sagði frá verkefnum Hjálparstarfsins í sínu landi og hve mikils virði það væri að fá aðstoð við að létta samlöndum sínum lífið.  Sagði hann til dæmis frá öllum brunnunum sem fermingarbörnin á Íslandi höfðu safnað fyrir.  Það gerir fólkinu kleift að fá hreint vatn sem þau höfðu ekki aðgang að áður.  Þegar hann fór um Suðurlandið þá hafði hann á orði að hann hefði aldrei séð svona mikið vatn.  Hvarvetna blöstu við ár og lækir og fossar.  Þetta fannst honum stórkostlegt því eins og við vitum er vatnið eitt að dýrmætum jarðar og undirstaða lífs plantna, dýra og manna.

Undanfarið hefur okkur þótt helst til of mikið af vatninu góða í kringum okkur.  Það rignir nánast upp á hvern dag.  Og það er ekki bara hér á landi heldur víða um heim.  Undanfarnar vikur hafa borist fréttir af flóðum þar sem vatnselgurinn hefur engu eyrt á vegferð sinni.  

„Vatn flæðir yfir brúna yfir ána Skálm og á Hringveginn á um kílómetra metra kafla austan við brúna“  var ein fréttin.  „Nokkur flóð hafa skollið á norðausturhluta Indlands síðustu mánuði vegna mikillar úrkomu. Óvenju miklar rigningar hafa herjað á svæðið á yfirstandandi rigningartímabili“ var önnur nýleg frétt og „Úrfelli á meg­in­landi Evr­ópu hef­ur leitt af sér flóð í Þýskalandi, Belg­íu og Hollandi. Rýma þurfti ákveðin svæði sök­um flóðahættu“ en svo var ástandinu í þessum löndum lýst í vor.

Slíkar fréttir hafa verið fleiri undanfarin ár en oft áður.  Þar er um að kenna loftslagsbreytingum sem hafa breytt veðurfari til hins verra fyrir mannkynið og jörðina sem það byggir.  Reynsla elstu manna eða minni kemur að litlu gagni til að bregðast við þessum breytingum.  Við byggjum margt á reynslunni þó oft gangi fólki illa að byggja á reynslu fyrri kynslóða.

Í Biblíunni eru fjölmargar sögur af reynslu einstaklinga og heilla kynslóða.  Þessar sögur kenna okkur hvernig best er að verja lífinu á þessari plánetu sem stynur nú undan ágangi og græðgi mannanna.

Ein þessara sagna var lesin hér áðan, dæmisaga sem Jesús sagði um mennina tvo sem byggðu sér hús.  Annar var hygginn.  Hann byggði hús sitt á bjargi og hinn heimskur, hann byggði hús sitt á sandi.  Það kom steypiregn og húsið á bjarginu stóð fast, en það sem á sandi var byggt féll og fall þess var mikið eins og segir í sögunni.  Við þekkjum þessa sögu vel enda er söngur byggður á þessari sögu enn sunginn og kenndur börnum. 

Steypiregn var sem sagt þekkt fyrir tvö þúsund árum annars hefðu áheyrendur Jesú ekki skilið dæmisöguna.  En auðvitað hefur þessi saga dýpri merkingu.  Hún fjallar um líf okkar, á hverju við byggjum það, hvernig við bregðumst við aðstæðum og björgum okkar þegar steypiregn birtist í formi áfalla og erfiðleika í lífi okkar.  Hún fjallar um að byggja líf okkar á traustum grunni trúar, vonar og kærleika.  Á traustum grunni virðingar, réttlætis og fyrirgefningar.

Jesús sagði þessa dæmisögu til að minna okkur á að ef við treystum honum og fylgjum boðum hans þá erum við eins og hyggni maðurinn sem byggði hús sitt á bjargi.  Hann sjálfur er bjargið, hefur bjargráðin sem okkur býðst að hafa í verkfærakistunni okkar.  Hann býður okkur að velja að treysta sér og þannig minnka áhyggjur, kvíða og ótta sem geta sest að í huga okkar.  Hann býður okkur að bera byrðar lífsins með okkur til að létta okkur lífsgönguna.  Hann býður okkur samfylgd í blíðu og stríðu.  Hann flytur okkur kærleiksboðskapinn um að elska Guð og náungann eins og okkur sjálf.  Hann þvingar okkur ekki til að treysta sér eða fara eftir boðskap sínum því okkar er valið. Kristin trú felur okkur ábyrgð á eigin lífi og vali um hvernig við viljum lifa því. Kristin trú er samfélagsleg trú þar sem við erum aldrei ein á ferð heldur ávallt í fylgd leiðtogans mikla Jesú Krists og samferðafólks okkar á hverjum tíma.  Hins vegar er okkur ekki lofað lífi án erfiðleika, heldur er okkur bent á leiðir til að bregðast við þegar þeir koma upp.

Jesús setur kærleikann á oddinn í kenningu sinni.  Hann bendir á réttlæti, miskunn og trúfesti sem grundvallaratriði. Manngildið er jafnframt mikilvægt og umhyggjan fyrir öðrum. Og ekki má gleyma virðingunni fyrir sjálfum sér og öðrum.  Á Íslandi hafa þessi gildi verið mótandi fyrir samfélagið og menninguna.  Gildin eru máttarstólpar lífshúss hverrar manneskju og það er gott að sjá í leik- og grunnskólum víða um land að við blasa slík hugtök á veggjum.

Það eru miklar breytingar sem eiga sér stað hér á landi og um allan heim þessi dægrin.  Margar færa mál til betri vegar en því miður er margt sem betur má fara.  Til dæmis eru upplýsingaóreiða og falsfréttir ekki til þess fallnar að auka á traust eða auka öryggi fólks.  Ekki heldur vopnaburður eða efni sem draga úr möguleikunum til lífs í fullri gnægð. 

Undanfarið hefur kastljósinu verið beint að menntunarmálum í landinu.  Aðstæður barna eru misjafnar.  Sum börn þurfa að sitja í rútu allt að klukkutíma hvora leið í skólann á meðan önnur ganga stuttan veg.  Landið okkar fagra og fríða er ekki alltaf auðvelt hvað samgöngur varðar þó ekki sé talað um veðurfarið sem stundum hindrar ferðirnar til og frá skóla.  Mesti auður þessa lands er fólkið sem hér býr og vert að standa vörð um að möguleikar séu til búsetu um allt land.

Við höfum ekki farið varhluta að því að við búum í landi elds og ísa.  Því miður hefur það orðið þess valdandi að mikil röskun hefur orðið á högum fólks.  Nú síðast í Grindavík eins og kunnugt er.  Það er þakkarvert að fólk flykkist að til hjálpar án greiðslu og vinnuveitendur leyfi því að leggja niður störf sín þegar á þarf að halda.  Guð laun fyrir allt það góða starf og Guð gefi öllum þeim styrk sem takast á við nýtt líf á nýjum slóðum. 

Samleið forsetaembættisins og Þjóðkirkjunnar hefur frá upphafi verið farsæl. Ég bið þess að svo megi áfram verða. Ég þakka fráfarandi forseta Guðna Th. Jóhannessyni og frú Elísu samleið og störf svo og Ólafi Ragnari Grímssyni og frú Vigdísi Finnbogadóttur sem hefur verið frábær fyrirmynd okkar kvenna hér á landi og víða um heim.  Ég bið verðandi forseta farsældar í þjónustunni fyrir land og þjóð. Guð blessi þig og fjölskyldu þína alla.

Dýrð sé Guði, föður og syni og heilögum anda, svo sem var í upphafi er og verður um aldir alda. Amen.