Hræðsla - kvíði - ótti - uggur

Hræðsla - kvíði - ótti - uggur

Kvíða og ótta er hægt að lækna án hjálpar trúarinnar. En lífsháski og ótti rífur hins vegar falskt öryggi og opinberar nekt okkar. Að okkur læðist lífsangist, grunur um, að líf okkar verði ekki rétt eða fagurt nema eitthvað meira komi til. Það þarf að vekja Jesú!

Guðspjall: Matt 8.23-27 Nú fór hann í bátinn og lærisveinar hans fylgdu honum. Þá gjörði svo mikið veður á vatninu, að bylgjurnar gengu yfir bátinn. En Jesús svaf. Þeir fara til, vekja hann og segja: Herra, bjarga þú, vér förumst.

Hann sagði við þá: Hví eruð þér hræddir, þér trúlitlir? Síðan reis hann upp og hastaði á vindinn og vatnið, og varð stillilogn.

Mennirnir undruðust og sögðu: Hvílíkur maður er þetta? Jafnvel vindar og vatn hlýða honum.

Vopnað rán Ég varð einu sinni vitni að vopnuðu ráni í sjoppu í borginni Nashville í Suðurríkjum Bandaríkjanna. Ég hafði farið á föstudagskvöldi til að kaupa nauðþurftir fyrir sambýlinga, var eini viðskiptavinurinn í búðinni, þegar grímuklæddur byssumaður hentist inn um dyrnar, æpti að okkur afgreiðslumanninum að rétta upp hendur. Allt gerðist hratt og ég átti bágt með að trúa eigin augum og eyrum. Ránsmaðurinn var æstur, augnaráðið var tryllingslegt, titringurinn í höndum og skjálfandi byssan voru skilaboð um, að maðurinn væri til alls líklegur. Afgreiðslumaðurinn tók fyrir hjartað, staulaðist að peningakassanum og gerði sig líklegan að afhenda grænt dollarabúnt.

Allt í einu beindi ræninginn athyglinni og byssunni að mér. Mér fannst hlaupið svo stórt að það minnti helst á haglabyssuhlaup. Svo heyrði ég hann öskra: “Leggstu á gólfið - með andlitið niður” Ég lyppaðist niður. Það var mun verra, að geta ekki séð neitt og fylgjast með með framvindunni. Ég vissi ekki, hvort maðurinn væri líklegur til að lóga okkur afgreiðslumanninum eða hvort þetta væri bara venjulegur þjófur, sem vildi valda sem minnstum usla en ná sem mestu fé. Af því ég sá ekkert bjóst ég við hinu versta, að kúla færi brátt í gegnum búk minn eða höfuð. Ég finn fyrir verknum í líkamanum sem bjóst við hinu versta. Ránið settist að í mér.

En ræninginn fékk féð og hljóp út. Ég staulaðist á fætur og fór að stumra yfir afgreiðslumanninum, sem var með hjartaverk. Þá sá ég, að hann hafði verið með skammbyssu í afgreiðsluborðinu og skildi af hann hafði verið í spennu hvort hann ætti að grípa hana og skjóta.

Hví hræddir? Texti dagsins er í áttunda kafla Mattheusarguðspjalls. Jesús og hópurinn hans hafði lokið verkum og þeir höfðu lagt í hann. Í stað þess að ganga fóru þeir í bát. Jesús var óttalaus og sofnaði. Veður snarversnaði og rokið skóflaði upp öldum. Lærisveinarnir ýttu við meistara sínum og báru upp erindið: “Herra, bjarga þú, vér förumst.” En Jesús spurði af hverju þeir væru hræddir: “Hví eruð þér hræddir, þér trúlitlir?” Jesús hastaði síðan á það, sem ógnaði og þeir náðu áttum og landi og undruðust.

Báturinn er hluti fyrir heild, tákn um stærri veruleika. Við erum öll á sama báti, hvort sem við erum söfnuður hér í Vesturbænum, vinahópur á Genesaretvatni, þjóð eða mannkyn. Við erum sama marki brennd, eigum sömu örlög þegar grannt er skoðað. Við eigum allt undir, að báturinn farist ekki í einhverju stormviðrinu. Það skiptir síðan öllu máli hver er í bátnum og hver bjargar.

Samfélag óttans Í aðdraganda þess, að Condoleezza Rice tæki við embætti utanríkisráðherra Bandaríkjanna fyrir liðlega ári síðan (þ.e. 2005) talaði hún um samfélag óttans. Hún notaði heitið fear society til aðgreiningar frá samfélagi frelsis (og með vísan í bók Natan Sharansky: The Case for Democracy: The Power of Freedom to Overcome Tyranny and Terror). Samfélag óttans! Það er eitthvað til að varast. Við ættum að gæta þess að menningarmál okkar, uppeldismál og samfélag klekist ekki í hræðslusamfélag. Þegar við stöldrum við sjáum við, að margt er óttalegt. Fjölmiðlar t.a.m. fjalla gjarnan um það sem elur á ótta. Það er fréttnæmt, sem hugsanlega gæti farið úr böndum. Dæmi er fuglaflensufárið, sem hefur ríkt í fjölmiðlum heimsins í marga mánuði þó mannfallið sé lítið. Umfjöllunin hefur verið með þeim hætti, að það er eins og stórstyrjöld hafi brotist út. Vissulega gæti flensan í versta mögulega tilviki orðið skæð, valdið efnahagslegum, stjórnsýslulegum og pólitískum vandræðum. Hugsanlega gætu margir dáið. En þegar grannt er skoðað er fárið aðallega í hugum fólks. Fjölmiðlunin nærist á óttanum. Gætið að, er byssu beint að þér, ertu í lífshættu? Hvar er traustið og við hvað leggur þú trúnað?

Hræðsla Hræddir, af hverju? spurði Jesús vini sína í lífsháska. Í máli okkar eru til fjölmörg orð yfir það, sem er ógnvænlegt og vekur með okkur sterkar tilfinningar og kenndir: Kvíði, ótti, hræðsla, beygur, uggur, angist og skelfing. Ég hef ekki rekist á neina tæmandi útskýringu á merkingarsviði orðanna og málvitund okkar er mismunandi. Tilgangur minn að ræða þessi orð er ekki málfræðilegur, ekki heldur undirbúningur fyrir útgáfu trúarorðabókar Neskirkju, né verður lagt í einhvern akademískan málgreiningarbelg. Tilgangurinn er sá einn að íhuga guðspjallstextann og tengja við lífið.

Þrír flokkar hræðslunnar Til skilningsauka getum við flokkað hræðsluorðin í þrennt. Í fyrsta lagi eru hræðsluorð, sem vísa til þess sem er hið innra í okkur. Flokkur númer tvo varðar hræðsluefni hið ytra, fyrir utan okkur. Þriðji flokkurinn er síðan það, sem er handan hins þekkta heims og lífs. Ég nota orðið hræðsla um allar víddirnar, en síðan eru einstök hugtök, sem eiga betur við einstaka flokka en aðra. Hræðsla hið innra kalla ég kvíða, en hræðslu við eitthvað hið ytra kalla ég ótta. Þriðji flokkurinn er sérstakur og varðar það sem ég kalla lífsugg eða lífsangist.

Kvíðinn Hræðsla hið innra er kvíði gagnvart einhverju, sem við ímyndum okkur, einhverju sem ekki er, en gæti orðið, einhverju sem er ekki nálægt eða yfirvofandi, en veldur samt hræðslu. Flughræðsla er dæmi um kvíðaefni. Staðreyndin er sú að það er hættulegra að keyra út á flugvöll en fara með flugvél. Þetta vitum við flest, en samt sem áður eru margir hræddir. Aðrir eru kvíðnir vegna veikinda eins og krabbameins þó ekkert bendi til slíks. Einhvern tíma sá ég að um sjö prósent fólks er haldið kvíða, yfir tuttugu þúsund Íslendingar. Enginn smáfjöldi það! Kvíðaefni geta orðið svo ógurleg í lífi einstaklinga að þeir verða sjúkir, líf viðkomandi undirlagt og brenglað með ýmsu móti.

Óttinn og hið nálæga Svo er hræðslan, sem beinist að ákveðnum atriðum. Það er óttinn gagnvart því sem raunverulega ógnar, t.d ofsareiðum ofbeldismanni, sem heldur að þú sért helsti óvinurinn. Það er líka raunverulegt óttaefni að vera í sama herbergi og stórt og svangt rándýr.

Óttinn á sér rætur í reynslu, sem er miðlað í menningu (sbr. ábendingar mannfræðingsins Clifford Geertz) eða sem einstaklingurinn hefur orðið fyrir. Ef tilefni óttans er ógurlegt og algerlega yfirvofandi getur fólk fyllst skelfingu. Ef maður er á efstu hæð háhýsis sem er alelda hið neðra, engar flóttaleiðir mögulegar og engar þyrlur nærri, er ekki einkennilegt að fólk verði skelfingu lostið. Þau sem voru efst á tvíburaturnunum voru í þeirri stöðu. Ef maður er að keyra í hálku og stór strætisvagn kemur skautandi stjórnlaus beint á móti manni, engar bremsur virka og áreksturinn yfirvofandi, er ekkert einkennilegt að skelfingin verði alger.

Flokkun reynslu Þá erum við komin inn í texta dagsins að nýju. Bátsverjarnir voru hræddir vegna óveðurs. Kannski var einhver þeirra kvíðinn svona almennt talað. En ástandið var meira en kvíðvænlegt. Þeir voru fullir ótta við óveður, sem var svo rosalegt að vanir sjómenn töldu lífinu raunverulega ógnað. Þá hlupu þeir til Jesú, vöktu hann og leituðu aðstoðar. Jesús spurði meginspurningar: “Við hvað eruð þið hræddir” – og bætir við – “þér trúlitlir?” Hver eru þá tengsl trúar og hræðslu? Það var ekki kvíði sem ég upplifði í búðarráninu, heldur ótti við ákveðnar aðstæður. En ef mér hefði ekki lánast að vinna úr reynslunni hefði ég getað orðið kvíðinn og óttast að ég lenti í ráni í sjoppum heimsins í hvert sinn sem ég færi í slíka í myrkri. En það sem varð mér drýgsta umhugsunarefnið í kjölfar þessarar reynslu var að hversu lífið er brothætt og hversu lítið þarf til að manneskjan drukkni í öldugangi daganna og lífið hverfi.

En gagnvart háska vakna spurningar um hinstu rök, hinar trúarlegu spurningar. Líf okkar gefur tilefni fyrir úrvinnslu – þar er trúarglíman. Ef við náum ekki að þroska með okkur trú geta hræðsluefni valdið skemmdum, t.d. í mynd kvíða og jafnvel alvarlegri sjúkleika.

Uggur og angist Kvíði og ótti eru ekki trúarleg fyrirbæri, en geta orðið tilefni til trúarlegrar glímu og hafa ýmsar trúarlegar skírskotanir. En ein tegund hræðslu varðar trú. Hún er handan þess, sem við köllum kvíða og ótta. Þá á ég við það, sem stundum hefur verið nefnt uggur, eða angst í erlendum bókum og danski heimspekingurinn Sören Kierkegård (1813-55) notaði til að nefna það, sem er djúprættara en venjulegur ótti við eitthvað. Þessa vídd hræðslunnar getum við kallað líka kallað lífsangist. Í ritum Kirkegård og síðan ýmissa tilvistarspekinga á tuttugustu öld merkir angst allt annað en kvíða eða ótta við veraldarfyrirbæri eins og dýr, hættulegar aðstæður eða fólk. Kierkegård lagði áherslu á, að menn væru frjálsir en gagnvart Guði mistækist þeim alltaf. Menn eru því fullir af ugg, sem er staða hins seka gagnvart hinu guðlega. Kannski getum við sagt, að uggur sé hræðsla gagnvart djúpum sjálfsins og tilverunnar, hræðsla gagnvart innræti og merkingu heimsins, dýptum okkar sjálfra, líka myrkrinu, hinu óþekkta og hræðilega í okkur sjálfum og heiminum - því sem er handan við veruleikann eins og við sjáum hann og þreifum á.

Lífsangist Kvíða- og óttaefni er hægt að lækna og sefa án hjálpar trúarinnar. En lífsháski og ótti rífur hins vegar falskt öryggi, brýtur hækjur okkar, strípar okkur, rífur af okkur andlegar skýlur og opinberar nekt okkar. Að okkur læðist í kjölfarið lífsangist, þessi grunur um, að líf okkar sé ekki fyllilega rétt, ekki fullsátt eða fagurt nema eitthvað meira komi til, eitthvað sem sættir andstæðurnar hið innra, streituþætti veraldar, og leysir tilvistargáturnar, gerir upp óuppgerð mál, höfuðsyndir mannkyns, sem engir ná að leysa. Dæmi um slíkt er þjóðarmorð.

Menn í þessum heimi eru í báti sem siglir sjó lífsbaráttu. Við bregðumst við og reynum að túlka reynslu okkar. Þegar verst lætur mögnum við hjátrú, hindurvitni, ofstopa, hatur á grundvelli hræðslu. Þegar vel fer lærum við af aðstæðum, horfumst í augu við hræðsluna og verðum skynug og vitur. Hver er með þér í bátnum?

Það er mannlegt að hræðast. Þegar best lætur gerum við okkur grein fyrir hvað eru kvíðaefni, hvað óttaefni og hvað uggur um inntak tilverunnar, okkur sjálf og Guð. Að lifa er stundum háskalegt, en það hræðilegt að sjá bara bylgjurnar og taka ekki eftir honum sem er í bátnum með okkur og getur bjargað.

Við þurfum að horfast í augu við hræðsluefni okkar en líka læra að sjá það sem gerir upp angistina. Guð hefur aldrei lofað bátsverjum sínum lygna sjósiglingu, ekki lífsins Saga class, ekki að losna við átök og áföll. Okkur hefur aldrei verið lofað, að við munum sleppa við sorg og sjúkdóma. Við höfum engin fyrirheit um, að við sleppum billegar en einhverjir aðrir – allir hinir. Það sem gerir gæfumuninn er, að við eigum þann að í bátnum sem segir okkur að við megum sjá hin dýpri rök, megum rífa í hann þegar allt virðist vera að farast og sökkva undir okkur. Þá kemur trúin inn, hjálpar í glímunni við kvíða, óttaefni og líka angist hinnar meiri.

Trúin eyðir hræðslu Þeir sem eru einir á báti, eru trúlitlir, sjá oft tilveruna bara í mynd óveðurs og ógna og leggja því sitt til samfélags óttans. Þau eiga ekki neina algilda vörn gegn vonsku og hættum. Byssuhlaupin verða slíkum að skelfingarmálum sem kalla á ofbeldisviðbrögð, hjátrú og ofsa. En þegar menn gera sér grein fyrir að kvíðaefnin, fár heimsins, öldufaldar tímans eru ekki annað en gárur, sem hægt er að hasta á með hjálp skapara himins og jarðar, þá verður auðveldara að glíma við kvíðann, líka óttann og lífsangistina.

Trúin verður ekki til á grundvelli hræðslunnar. En hræðslan verður stundum tilefni þess að menn fara að leita til trúar og síðan til hans sem er viðfang og höfundur trúarinnar. Þegar menn eru í þeim sporum þá vaknar hann og þá fá menn tækifæri til að upplifa að kvíðinn getur sefast, óttinn líka og uggurinn dvínar.

Amen

Lexía: Jes 40.25-31 Við hvern viljið þér samlíkja mér, að ég sé honum jafn? segir Hinn heilagi.

Hefjið upp augu yðar til hæða og litist um: Hver hefir skapað stjörnurnar? Hann, sem leiðir út her þeirra með tölu og kallar þær allar með nafni. Sökum mikilleiks kraftar hans og af því að hann er voldugur að afli verður einskis þeirra vant.

Hví segir þú þá svo, Jakobsætt, og hví mælir þú þá svo, Ísrael: Hagur minn er hulinn fyrir Drottni, og réttur minn er genginn úr höndum Guði mínum?

Veistu þá ekki? Hefir þú ekki heyrt? Drottinn er eilífur Guð, er skapað hefir endimörk jarðarinnar. Hann þreytist ekki, hann lýist ekki, speki hans er órannsakanleg.

Hann veitir kraft hinum þreytta og gnógan styrk hinum þróttlausa. Ungir menn þreytast og lýjast, og æskumenn hníga, en þeir, sem vona á Drottin, fá nýjan kraft, þeir fljúga upp á vængjum sem ernir. Þeir hlaupa og lýjast ekki, þeir ganga og þreytast ekki.

Pistill: Rm 13.8-10 Skuldið ekki neinum neitt, nema það eitt að elska hver annan, því að sá, sem elskar náunga sinn, hefur uppfyllt lögmálið. Boðorðin: Þú skalt ekki drýgja hór, þú skalt ekki morð fremja, þú skalt ekki stela, þú skalt ekki girnast, og hvert annað boðorð er innifalið í þessari grein: Þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig. Kærleikurinn gjörir ekki náunganum mein. Þess vegna er kærleikurinn fylling lögmálsins.

Flutt í Neskirkju 29. janúar 2006