Fagnaðarerindið opinberast í lífi okkar hér og nú

Fagnaðarerindið opinberast í lífi okkar hér og nú

Hvatning Markúsar er að við meðtökum fagnaðarerindið inn í líf okkar hér og nú, og lifum okkar lífi á þann máta að það sé vitnisburður um kærleika Guðs til mannanna.
fullname - andlitsmynd Þorvaldur Víðisson
25. desember 2022
Flokkar

Biðjum: 

 

Hjarta mitt skal vera 

þér hæli, Jesús minn, 

þar bústað skal þér gera, 

ég býð þér glaður inn. Amen. 

 

Gleðileg jól 


Kæri söfnuður, kæru vinir, Gleðileg jól. 

Jóladagur runnin upp. Heilög stund.  


Jóhannes 


Fyrstu versin í Jóhannesarguðspjalli eru fallegt ljóð um Orðið. Guðspjall jóladags í kirkjum landsins.  

Í upphafi var Orðið og Orðið var hjá Guði og Orðið var Guð. Hann var í upphafi hjá Guði. Allt varð til fyrir hann, án hans varð ekki neitt sem til er. Í honum var líf og lífið var ljós mannanna.  

Þarna er Jóhannes að fjalla um Jesú. Guðspjöllin eru fjögur í Biblíunni, hin eru Lúkasarguðspjall, Mattheusarguðspjall og Markúsarguðspjall.  


Lúkas 


Læknirinn Lúkas, sem guðspjall aðfangadags er kennt við, var geysilega snjall að koma saman svo ríkri lýsingu í ekki lengri texta.  

En það bar til um þessar mundir að boð kom frá Ágústusi keisara … 

En þannig hefst jólaguðspjall Lúkasar, sem lesið var í kirkjum landsins á aðfangadagskvöld og við heyrðum hér áðan, og rifjum upp á hverjum jólum, endurtökum textann um fæðingu Jesúbarnsins í Betlehem, Maríu og Jósef, hirðana og englana. Söng englana um frið.  

Hversu fögur frásaga.  

Frásagan er myndræn, við eigum auðvelt með að sjá atburðina fyrir okkur, og sviðsmyndin ein sú frægasta í heiminum, af jólabarninu í jötunni og Maríu og Jósef. 


Mattheus 


Matteusarguðspjall segir frá fæðingu Jesú í tengslum við uppruna Jesú og ættir, hvaðan hann kom, hvaðan foreldrar hans voru. Sá sem skrifar það vill sýna fram á að Jesú var af sömu ætt og Davíð konungur, sem Davíðssálmar eru kenndir við: Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta, segir í sálmi 23. Mattheus skrifar s.s. fyrir gyðingana, þá sem þekkja Gamla testamentið, það er samhengi Mattheusarguðspjalls 


Markús 


Síðan er það Markúsarguðspjall sem hefst bara á orðunum: 

Upphaf fagnaðarerindisins um Jesú Krist, Guðs son. 

Líkt og segir í norsku þýðingunni: 

Her begynner evangeliet om Jesus Kristus, Guds Sønn. 

Ekkert fagurt ljóð, ekki samhengi kynslóðanna, né rík myndræn lýsing. Þegar ég las þetta fyrst fannst mér þetta heldur tómleg lýsing hjá Markúsi  

En síðan sá ég og lærði hina dýpri merkingu Markúsarguðspjalls.  

Fyrir lesandann eða þann sem heyrir þessi upphafsorð, þá hljóma þau einfaldlega: 

„Upphaf fagnaðarerindisins...“ segir Markús.  

Sem þýðir að fagnaðarerindið er ekki bara eitthvað sem gerðist fyrir árþúsundum síðan, í fyrndinni, í fjarlægu landi. Þegar við lesum fyrstu orðin heyrum við að þau eru ætluð þeim sem lesa textann, og þeim sem heyrir, á öllum tímum, og okkur, einmitt í dag. 


Hér hefst það 


„Hér hefst fagnaðarerindið...“ ef við þýðum norska textann samkvæmt orðanna hljóðan. Fagnaðarerindið hefst einmitt hér og nú, í lífi þínu og lífi mínu. Hvenær sem textinn er lesinn.  

Hvenær sem við heyrum jólaguðspjallið og meðtökum það inn í líf okkar.  

Hvatning Markúsar er að við einmitt meðtökum fagnaðarerindið inn í líf okkar hér og nú, og lifum okkar lífi á þann máta að það sé vitnisburður um kærleika Guðs til mannanna.  


Ala upp 


Textarnir veita okkur myndir af Guði sem er ríkur af náð og kærleika, en sem fæðist einnig inn í heiminn sem ósjálfbjarga lítið barn. Eins og gagnvart öllum öðrum kornabörnum erum við þar með sett í þá stöðu að sinna þessu litla barni, þjóna því og elska það. Við höfum þar með hlutverki að gegna.  

Frásögur jólanna miðla okkur m.a. þessu.  


Frásögur 


Að miðla góðum sögum er eitthvað sem hefur fylgt mannlífinu alla tíð. Þetta er það sem við gerum öll, löðumst að einhverju leiti að sögum og frásögum, segjum sögur, segjum frá, tölum saman, deilum reynslu hvert með öðru.  

 

Við erum alltaf að vinna með sögur, í skólum er stöðugt unnið með frásögur, stjórnmálin byggja á frásögum, heilbrigðiskerfið á sínar frásögur, menningarlífið, tónlistin og íþróttirnar og þannig mætti áfram telja.  

 

Reynsla okkar í formi frásögu 

 

Það hefur verið venja á heimili okkar hjóna að lesa fyrir börnin fyrir svefninn. Þessi stund eftir eril dagsins, þið kannist við þetta, að setjast við rúmstokkinn og lesa Astrid Lindgren eða Gunnar Helgason, Gerði Kristnýju eða Andra Snæ, sögur um Harry Potter eða Harry og hrukkudýrin eða hvað annað sem glæðir málþroska og sköpunargleði, og síðast en ekki síst glæðir samfélagið á heimilinu og vináttuna í fjölskyldunni. 

 

Lífið snýst svo oft um það að miðla áfram góðum frásögum sem við höfum lært og einnig góðum reynslusögum úr okkar eigin lífi. 

 

Sagt hefur verið að góð skáldsaga geti verið sannari heldur en reynsla okkar hvers og eins. Þ.e.a.s. þegar mannleg reynsla okkar margra er dregin saman í frásögu, þá geta færir rithöfundar komið á framfæri einhverju sem rúmar stærri reynslu og þekkingu en hver og einn einstaklingur getur eignast á heilli ævi.  

 

Mannleg reynsla kynslóðanna 

 

Frásögurnar sem Biblían geymir eru einmitt þannig, þær varðveita mannlega reynslu kynslóðanna og aldanna, miðla þekkingu á mannlegu eðli og glímu okkar hér í heimi. Séu þær lesnar í bæn og af þekkingu á þeim bakgrunni sem þær spretta úr geta þær vakið trú, glætt von og miðlað kærleika.   

 

Þetta er eitt af sameiginlegum verkefnum okkar, það er að miðla áfram góðu frásögunum af mildi og kærleika Guðs og einnig því sem lífið hefur kennt okkur, miðla áfram góðri og uppbyggilegri reynslu.  

 

Að segja frá, segja sögur, það er eitt af því sem við gerum og markmið okkar er kannski það að miðla áfram okkar bestu frásögum til komandi kynslóða.  

 

Ritningarnar fjallar um það hvað það er að vera manneskja. Hvað það er að vera manneskja í heiminum og í samfélagi við aðra. Þekkingu Biblíunnar er gjarnan miðlað í formi frásagnar, í formi líkinga, ljóða eða spakmæla. Frásögurnar, smásögurnar, eru notaðar til að varpa ljósi á eðli Guðs.  

 

Hér er um annars konar þekkingu að ræða heldur en stærðfræði, líffræði eða eðlisfræði miðla okkur. Þekking hins trúarlega er annars konar og svo virðist sem aldirnar hafi kennt okkur að miðlun þeirra sé farsælust á þessu formi.  

 

Textar Biblíunnar miðla þekkingu til okkar um hvað það er að vera manneskja. Í textunum má finna ákveðinn rythma lífsins, þar sem endurtekning kemur fyrir, árleg endurtekning, er við höldum m.a. upp á fæðingu, fæðingu Guðs í heiminn, í Jesú Kristi.  

 

Og svo er það hinn djúpi sannleikur sem kynslóðirnar hafa miðlað um eðli lífsins,   

mildi, kærleika, góðvild og gæsku, en einnig um það að það er Guð sem vakir yfir, verndar og blessar, og að það sé raunverulega til Guð, sem lætur sig varða, og sérstaklega þegar sorgin kveður dyra eða aðrir erfiðleikar, þá vill Guð einmitt vera þar, með okkur á lífsveginum.  

 

Hjartað okkar, jatan hans 

 

Hjarta okkar skal vera jatan hans, eins og Böðvar Guðmundsson kemst svo fallega að orði í einum af nýju jólasálmum nýrrar sálmabókar, en þar segir hann: 

 

Svo undarlegt að ræða 

og annarlegt að sjá 

að kóngur hæstra hæða 

í kaldri jötu lá, 

að ljósið lífsins sanna 

og lífsins orðið milt 

skal hrekjast meðal manna 

í myrkrum húsavillt. 

 

Nei, hjarta mitt skal vera 

þér hæli, Jesús minn, 

þar bústað skal þér gera, 

ég býð þér glaður inn 

og gjöld skal engin greiða 

í griðum þessa ranns, 

þar skal þér rekkju reiða 

í reifum kærleikans. (Sálmur 25:1 og 3) 

 

Um þetta fjalla jólin.  

 

Gleðileg jól, kæri söfnuður, kæru vinir. Gleðileg jól. 

 

Dýrð sé Guði, föður og syni og heilögum anda, svo sem var í upphafi, er og verður um aldir alda. Amen. 

 

Takið postullegri kveðju: Náðin Drottins vors Jesú Krists, kærleiki Guðs og samfélag heilags anda, sé og veri með yður öllum. Amen. 


Prédikun flutt á jóladag 2022 í Grensáskirkju.