Guðs engill birtist ungri stúlku hjá með yndislegan boðskap himnum frá. Og sagði: „Heil vert þú, er finnur náð hjá Guði.‟ Þú, snauðust allra fljóða, María!
„Í fylling tímans fæðast mun þér son, er flytur myrkum heimi trú og von. Og græðir lífsins sár með kærleiks vörmu hjarta.‟ Þú, snauðust allra fljóða, María!
Og hér barst röddin hlý og mildileg: „Sem Herrann æskir, fús það geri ég.‟ Við orðin ljúfu Gabríel þá hvarf á brautu. Þú, snauðust allra fljóða, María!
Og blítt svo fæddist barn: Emmanúel. Í Betlehem upp lýstist næturþel. Nú minnist þess um heimsbyggð alla kristinn lýður. Þú, snauðust allra fljóða, María!