Frá Narníu til Nasaret

Frá Narníu til Nasaret

Börn velkjast ekki í vafa um að talandi ljón tilheyrir ævintýri, sem og fljúgandi súpermannhundur. En þegar kemur að baráttu tveggja manna í bardagabúningi, jafnvel þó skrímsli komi þar við sögu, getur það virst full raunverulegt með tilheyrandi áhrifum á barnið.
fullname - andlitsmynd Bryndís Malla Elídóttir
02. október 2006

Getur verið að það leynist töfraveröld inn í skáp. Þar sem dýrin tala og hálfmennskar verur búa ásamt álfum? Þar sem hvíta nornin ræður ríkjum og ískalt hjarta hennar viðheldur eilífum vetri? Getur verið að slík töfraveröld sé til og hún sé inn í gamla skápnum? Fjögur systkini lenda fyrir tilviljun inn í Narníu og verða við það þátttakendur í spennandi atburðarrás sem C.S. Lewis ritaði niður í bók sinni Ljónið, nornin og skápurinn. Sagan geymir margar sterkar táknmyndir sem áhugavert getur verið að skoða nánar auk þess að vera frábært ævintýri. Hið góðlega ljón – að sjálfsögðu talandi- vekur hlýju svo veturinn hörfar en nornin er sterk með töframátt sinn.

Í sögunni er ekki aðeins varpað fram hinni eilífu spurningu um rétt og rangt heldur einnig um hjartalag Adamssona og Evudætra, um hjartalag mann, hugrekki, kærleika, fórnfýsi og trú, já trú á hið góða. Það er best að upplýsa ekki of mikið um söguþráðinn fyrir þá sem enn hafa ekki lesið bókina eða séð myndina. Best er að kynnast Narníu af eigin raun og sjá með því að þar er ævintýraheimurinn raunverulegri en í fyrstu mætti ætla.

Það er hins vegar ekki alltaf auðvelt að greina milli þess sem raunverulegt reynist og þess sem aðeins tilheyrir ævintýrasögum. Sumar sögur eru ævintýri líkastar þó sannar séu en svo er því líka öfugt farið að ævintýri og skáldskapur séu sett í svo raunverulega umgjörð að skilin þar á milli virðast óljós. Margt sem borið er á borð fyrir börn í formi afþreyingar er gert með þessum hætti og oft vantar mikið upp á að tekið sé tillit til þroska barna og möguleika þeirra á að greina milli veruleika og ævintýraheims. Börn velkjast ekki í vafa um að talandi ljón tilheyrir ævintýri, sem og fljúgandi súpermannhundur. En þegar kemur að baráttu tveggja manna í bardagabúningi, jafnvel þó skrímsli komi þar við sögu, getur það virst full raunverulegt með tilheyrandi áhrifum á barnið.

En nú eru ævintýri sumarsins að baki og vetrarstarfið í skólum og kirkjum hefur tekið við. Þann 3. september hófst barnastarf kirkjunnar þar sem kirkjan býður börnum og unglingum að taka þátt í uppbyggilegu starfi. Barnaguðsþjónustur eru alla sunnudaga kl. 11 og á virkum dögum er að finna starf fyrir eldri börn sem og unglinga. Allt barnastarf kirkjunnar hefur það að markmiði að leiða börnin til fundar við Jesú Krist frá Nasaret. Sagðar eru sögur af honum úr Nýja testamentinu en einnig sögur af hetjum Gamla testamentisins sem gefa Spiderman og Batman ekkert eftir. Það sem gerir starf kirkjunnar sérstakt er að allt sem fram fer er byggt á raunverulegum atburðum.

Sögurnar um Jesú geyma staðreyndir um líf frelsarans og máttur kærleika hans til okkar er ekki tilbúningur heldur raunverulegur þeim sem upplifa hann. Það er þennan kærleika sem kirkjan boðar og vill umfaðma með þá sem til hennar leita. Kærleikur, kærleikur tautaði nornin í Narníu með vændlætingu, þú skalt elska af öllu hjarta þínu segir Jesús frá Nasaret. Hvort viðhorfið stendur hjartalagi okkar nær? Hvort er raunverulegra?