Hvítasunna

Hvítasunna

“Hvítasunnan er svona mikil hátíð, því þá höfum við heila þrjá daga í frí til að djamma”
fullname - andlitsmynd Þórhallur Heimisson
10. júní 2011

Flest vitum við hvers vegna haldið er upp á jól og páska að kristnum sið. Á jólum fögnum við kristnir menn fæðingu frelsarans Jesú í heiminn. Á páskum gleðjumst við yfir upprisu hans, sigri hans á dauðanum sem gefur okkur von um eilíft líf okkur til handa. 

En hvað með hvítasunnu?

Maður nokkur svaraði því fyrir sitt leiti á þennan veg, þegar hann var spurður af fréttamanni á förnum vegi: “Hvítasunnan er svona mikil hátíð, því þá höfum við heila þrjá daga í frí til að djamma”. Og vissulega hafði hann á réttu að standa hvað það varðar að það er mikið djammað um þessa fyrstu ferðahelgi ársins eins og hún er kölluð. En minna er spáð í hvers vegna hátíðin er haldin.

Hvítasunnan á marga strengi í hörpu sinni. Meðal annars er hún vor og sumarhátíð kristinnar kirkju. Um hvítasunnu fögnum við sumri, lofum Guð fyrir stuðning hans um langa vetrardaga og biðjum þess, að land og haf beri ríkulegan ávöxt það misseri, sem nú fer í hönd.  Upprisuboðskap páskanna fögnum við líka um hvítasunnu. Tilveran öll rís upp þessa daga. Lífið hefur sigrað dauðann, og sérhver skepna skaparans á hlutdeild í þeim sigri. Veturinn er á enda og sumarið knýr dyra. Sólin lýsir upp landið okkar allan sólahringinn. Við þökkum  Guði og biðjum hann að vera með okkur á komandi sumri. Árstíðirnar allar hvíla í hendi hans.  Íslendingar hafa löngum beðið vorsins með óþreyju. Langar skammdegisnætur og enn lengri útmánuði horfa menn löngunaraugum fram til komandi sumars. Fögnuðurinn er að sama skapi ósvikinn þegar sumarið rennur upp yfir landið. Þann fögnuð eigum við öll sameiginlega. Bestu mánuðir ársins fara í hönd með blóm í haga, sæta langa sumardaga. Allt þetta undirstrikar hvítasunnan.

Annar strengur hvítasunnunnar tengist upphafi kirkjunnar. Þau heimstrúarbrögð, sem ganga undir samheitinu kristni og teygja sig nú í einhverri mynd til allra landa á jörðu, voru stofnuð á hvítasunnudag. Hvítasunnudagur er fæðingardagur kirkjunnar, afmælishátíð hennar ár hvert. Hvítasunna er beintengd páskum, upprisuhátíðinni. Meginhluta þeirra sjö vikna, sem liðu frá páskum til hvítasunnu gekk hinn upprisni Drottinn Jesús Kristur um meðal lærisveina sinna, birtist þeim ítrekað og styrkti þá í trúnni. Fjörutíu dögum eftir páska ávarpaði hann lærisveina sína og sagði: “Þér skuluð skírðir verða með heilögum anda nú innan fárra daga”. Þegar hann hafði þetta mælt, varð hann upp numinn að þeim ásjáandi.  Tíu dögum síðar voru lærisveinarnir allir saman komnir. Þá urðu þau tíðindi, sem nefnd eru “hvítasunnuundrið. Sama dag talaði Pétur postuli til mikils mannfjölda sem dreif að, er gnýr heyrðist af himni og tungutal kvað við.  En þeir sem veittu orði Péturs  viðtöku voru skírðir, og þann dag bættust við um þrjú þúsund sálir, eins og í Postulasögunni segir. Þannig varð kirkja Krists til. Kirkjan rekur því ekki upphaf sitt til verka manna. Þó kirkjustofnunin vilji nú oft verða býsna mannleg og breyskleg í starfi sínu og verki, þá er það aðeins önnur hlið hennar sem þannig birtist. Hin hliðin grundvallast á sköpunarmætti Guðs og krafti Guðs. Án Guðs væri því engin kirkja.

Hvað það var, sem raunverulega hratt af stað þessari viðburðarás hinn fyrsta hvítasunnudag, hefur verið mönnum hugstætt á  öllum öldum. Þar er hinn þriðja streng hvítasunnunnar að finna. Postularnir fylltust allir heilögum anda og tóku að tala öðrum tungum, eins  og andinn gaf þeim að mæla, segir í Postulasögunni. En hver er þessi kraftur sem Postulasagan talar um og kallar heilagan anda? Jú, það er þessi sami andi Guðs sem hvíslar að þér í einrúmi bænarinnar, lætur þig verða varan við nærveru sína á förnum vegi og hrífur þig í náttúrunnar ríki. Og þetta er erindi heilags anda við okkur. Þetta er hið eiginlega hvítasunnuundur í lífi allra kristinna manna á þessari helgu hátíð og hverja stund árið um kring.

Vegna nálægðar andans í lífi og starfi sérhvers kristins manns, þá felur hvítasunnann í sér en einn sterkan streng. Það er hvatningin til að lifa lífi sínu í ljósi þess að við erum hvert og eitt kölluð til hins nýja samfélags sem andinn stýrir. Öll okkar verk, orð og æði á að einkennast af þessu. Hvar sem andinn kallar okkur til verka í heiminum, eigum við ekki að skorast undan heldur ganga fram í eldmóði, í heilögum anda. Í heimi þar sem myrkrið á margan hátt fer vaxandi, eiginhagsmunasemin ræður ríkjum og enginn veit hvað morgundagurinn ber í skauti sér er þessi boðskapur besta vörnin og sterkasta skjólið. En um leið kallar hann okkur til að sækja fram og takast á við myrkrið og sigra það undir merkjum krossins - óttalaus.

Það er kjarni þess boðskapar sem hvítasunnan flytur okkur.

Guð gefi þér gleðilega hvítasunnuhátíð.