Jæja, jæja! Enn einn dagurinn úr hendi Drottins.
Á hverjum degi, þegar ég sest við tölvuna í vinnunni- opna ég nýtt „word“ skjal og skrifa þessa línu. Þegar maður skrifar þetta svona á hverjum degi þá er óhjákvæmilegt að sjá hve örlátur Drottinn er á dagana.
Manni finnst gjarnan ævin stutt ... sérstaklega þegar ljóst er að minna er eftir en liðið er.
En þá kemur nýr dagur og enn nýr dagur og enn einn nýr dagur. Þetta virðist líða hratt en í rauninni er þetta lífið. Það er kannski bara jákvætt þegar manni finnst lífið líða hratt. Það sýnir að maður er sprell virkur í lífinu og getur tekið þátt í því.
Dagarnir silast ekki áfram hægir og tilbreytingalitlir.
Þeir fljúga fjörugir áfram og kalla á það að við njótum þeirra, nýtum þá og notum.
Hættum að kvarta yfir því hve hratt tíminn flýgur.
Njótum þess og fljúgum með á vængjum tímans, full af fjöri og orku fyrir hvern nýjan dag.