Sálmabók

11. Kom þú, kom, vor Immanúel

1 Kom þú, kom, vor Immanúel
og leys úr ánauð Ísrael,
lýðinn þinn sem í útlegð er
og hlekki ber uns sjálfan þig hann sér.
Ó, fagnið nú! – Immanúel
mun fæðast sínum Ísrael.

2 Kom þú með dag á dimma jörð,
þín væntir öll þín veika hjörð.
Lækna þrautir og þerra tár,
græð þú, Kristur, öll dauðans djúpu sár.
Ó,fagnið nú! ...

3 Kom þú, kom, Davíðs arfi dýr,
því máttinn þinn allt myrkur flýr.
Lát þú opnast þíns himins hlið,
kom, Guðs sonur, með frelsi þitt og frið.
Ó, fagnið nú! ...

T Latn. andstef – John M. Neale um 1851 – Sigurbjörn Einarsson 1962 – Sb. 1972
Veni, veni Immanuel
L Í frönsku handriti frá 15. öld – Helmore 1856 – Sb. 1972
Veni, veni Immanuel
Eldra númer 70
Eldra númer útskýring T+L
Biblíutilvísun Jes. 7.14

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is