Sálmabók

110. Hreint skapa hjarta

Hreint skapa hjarta,
Herra Guð, í mér,
lát ljós þitt bjarta
lýsa' oss jafnan hér
heims á hálum brautum
heims að flýjum synd.
Unaði' í og þrautum
oss þín prýði mynd.
Verði á oss vilji þinn,
vertu hjá oss, faðir minn,
burtu frá oss sérhvert sinn
synd og voða hrind.

T Páll Jónsson – Sb. 1871
L Hymnodia Sacra 1742 – Sb. 1772 – PG 1861
Kær Jesú Kristi
Eldra númer 359
Eldra númer útskýring T+L

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is