Sálmabók

120a. Frelsishetja, friðargjafi

1 Frelsishetja, friðargjafi!
Fyrr þó blinduð veröld hafi
krýnt þig þyrnum, sært þig sárum,
sjá, ég flétta vil með tárum
kærleikssveig um krossinn þinn.

2 Að þú barn í fátækt fæddist,
frjálsum vilja dýrð afklæddist,
að þú duftið elska náðir
og oss lífið veita þráðir.
Hvað mun valdið hafa því?

3 Heilög ást þín, hjartablossinn,
hræddist dauðann ei né krossinn.
Heimtar tregur, glaður gefur,
– gengið þannig aleinn hefur
undir krossinn vegna vor.

4 Ó, ég finn við ástúð þína
eigin kulda' og harðúð mína,
finn að hjartað hefur eigi
hrósun þá er gilda megi,
Kristur, móts við kærleik þinn.

5 Ofar samt er efa mínum,
upp spratt lind úr benjum þínum,
lind er harða kletta klýfur,
klaka bræðir, fjötra rýfur,
sú er laugar hjörtu hrein.

6 Ó, að rynni' í æðum mínum
uppsprettan úr benjum þínum,
lindin sú er kletta klýfur,
klaka bræðir, fjötra rýfur,
sú er laugar hjörtu hrein.

7 Þú er sjálfan þig mér gefur,
þú sem endurleyst mig hefur,
dvel mér æ í sál og sinni
svo að þú í hugsun minni
sért hin mikla meginlind.

8 Þótt sem blóm ég blikna megi,
brjóst og hönd mín kólna eigi.
Aldrei mun ég hugarhrelldur,
heilög kærleiksfórn því veldur,
beiska dauðans bergja skál.

9 Ég skal ætíð, ætíð játa:
Á þig trúi' eg, krossins gáta.
Fullting veit er fast að sverfur,
fylgd mér ljá er sýn mér hverfur,
heim í lífsins björtu borg.

T Arnulf frá Louvain fyrir 1250 – Nikolaj F.S. Grundtvig 1837 – Valdemar V. Snævarr, 1923 – Sb. 1945
Hil dig, frelser og forsoner
L Thomas Laub um 1890 – Ssb. 1936
Hil dig, frelser og forsoner
Eldra númer 142
Eldra númer útskýring T+L

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is