Sálmabók

127. Hvað hefur þú, minn hjartkær Jesú, brotið

1 Hvað hefur þú, minn hjartkær Jesú, brotið,
af hverju dóm svo þungan bíða hlotið?
Hvers vegna hlýtur hegning þú að líða
svo harða' og stríða?

2 Hve undarlegt! Í staðinn sinna sauða
er sjálfur leiddur hirðirinn til dauða
og Herrann réttvís þess með þjáning geldur
er þrællinn veldur.

3 Ó, Drottinn hæsti, hirðir sálna kæri,
með hverju get ég lofað þig sem bæri?
Ég á ei neitt er helgri hátign þinni
rétt hæfa kynni.

4 Ó, styrk þú mig svo veg þinn vel ég feti,
ei veröld neins og hennar gæði meti,
ei láti framar hold og heim mig villa
og hjarta spilla.

5 Þér trúan lát mig lífs til enda vera
svo lífsins krónu' eg síðar megi bera
og lofa þig í himna dýrðarhöllum
með hólpnum öllum.

T Johann Heermann 1630 – Helgi Hálfdánarson – Sb. 1886
O Jesu kär, vad har väl du förbrutit
L Guillaume Franck 1543 – Johann Crüger 1640 – PG 1878
Herzliebster Jesu,was hast du verbrochen
Eldra númer 132
Eldra númer útskýring T+L
Biblíutilvísun 1. Pét. 2.24–25

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is