Sálmabók

13. Velkomin vertu, vetrarperlan fríð

1 Velkomin vertu,
vetrarperlan fríð,
síblessuð sértu,
signuð jólatíð,
Guðs frá gæsku hendi
gulli dýrra hnoss.
Þökk sé þeim er sendi
þig svo gleðjir oss.
Þú oss friðar boðskap ber,
birtir grið og náð oss tér,
læknar sviða sárt er sker,
súta léttir kross.

2 Velkominn vertu,
vor Immanúel,
ástgjöf sú ertu
allt sem bætir vel
böl er hjörtu hrjáir,
haldin eymd og synd,
hvíld er þreyta þjáir,
þyrstum svalalind.
Jesú góði, þökk sé þér
þig að bróður fengum vér,
þitt oss blóðið lífgjöf lér,
ljóminn Guðs og mynd.

T Helgi Hálfdánarson – Sb. 1886
L Hymnodia Sacra 1742 – Sb. 1772 – PG 1861
Kær Jesú Kristi
Sálmar með sama lagi 546 772
Eldra númer 71
Eldra númer útskýring T+L

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is