Sálmabók

166. Send mér eld í anda

1 Send mér eld í anda
eilífðar úr heimi,
Drottinn, lífs af lindum
ljós þitt til mín streymi.
Grafist gamlar sorgir,
gleymist dagsins mæða.
Sé mín þrá og sigur
sókn til þinna hæða.

2 Kraft af krafti þínum,
Kristur, lát mig finna.
Sólarsýn mér veittu,
svölun orða þinna.
Hlekkir sundur hrökkvi,
húmi létti' af jörðu,
þegar naprast næðir
nótt að degi gjörðu.

3 Helga þú mitt hjarta
helgum anda þínum.
Öndvegi þú eigir
innst í huga mínum.
Minnstu ei á mínar
mörgu, stóru syndir.
Þvoi þær í burtu
þínar kærleikslindir.

4 Kom þú, Kristur hæða,
kom í dýrð og veldi.
Hjarta heimsins skírðu
himnakrafti' og eldi.
Boðskapur þinn breiðir
blessun löndin yfir.
Þúsundfaldar þakkir
þér sem í oss lifir.

T Einar M. Jónsson 1942 – Sb. 1945
L Hans Matthison-Hansen 1860 – Ssb. 1936
Syndernes forladelse
Eldra númer 174
Eldra númer útskýring T+L

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is