Sálmabók

30. Nóttin var sú ágæt ein

Kvæði af stallinum Kristí

1 Nóttin var sú ágæt ein,
í allri veröld ljósið skein,
það er nú heimsins þrautarmein
að þekkja' hann ei sem bæri.
:,: Með vísnasöng ég vögguna þína hræri. :,:

2 Í Betlehem var það barnið fætt
sem best hefur andar sárin grætt,
svo hafa englar um það rætt
sem endurlausnarinn væri.
:,: Með vísnasöng ég vögguna þína hræri. :,:

3 Fjármenn hrepptu fögnuð þann,
þeir fundu bæði Guð og mann,
í lágan stall var lagður hann
þó lausnarinn heimsins væri.
:,: Með vísnasöng ég vögguna þína hræri. :,:

4 Lofið og dýrð á himnum hátt
honum með englum syngjum þrátt,
friður á jörðu' og fengin sátt,
fagni því menn sem bæri.
:,: Með vísnasöng ég vögguna þína hræri. :,:

5 Þér gjöri' eg ei rúm með grjót né tré,
gjarnan læt ég hitt í té,
vil ég mitt hjartað vaggan sé,
vertu nú hér, minn kæri.
:,: Með vísnasöng ég vögguna þína hræri. :,:

6 Umbúð verður engin hér
önnur en sú þú færðir mér,
hreina trúna að höfði þér
fyrir' hægan koddann færi.
:,: Með vísnasöng ég vögguna þína hræri. :,:

7 Á þig breiðist elskan sæt,
af öllum huga' eg syndir græt,
fyrir' iðran verður hún mjúk og mæt,
miður en þér þó bæri.
:,: Með vísnasöng ég vögguna þína hræri. :,:

T Einar Sigurðsson í Heydölum – Vísnabókin 1612 – Sb. 1945
Kvæði af stallinum Kristí sem kallast Vöggukvæði
L Sigvaldi Kaldalóns, 1941 – Vb. 1946
Eldra númer 72
Eldra númer útskýring T+L
Biblíutilvísun Lúk. 2.6–20

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is