Sálmabók

359. Guð faðir sé vörður og verndari þinn

1 Guð faðir sé vörður og verndari þinn
svo veröld ei megi þér granda,
hvert fet þig hann leiði við föðurarm sinn
og feli þig sér milli handa.

2 Guðs sonur sé fræðari' og frelsari þinn,
ei frá þér hans skírnarnáð víki,
hann opni þér blessaðan ástarfaðm sinn
og innleiði þig í sitt ríki.

3 Guðs andi sé hjálpari' og huggari þinn,
í heimi þín vegferðarstjarna,
hann hjálpi þér síðan í himininn inn
að hljótir þú frelsi Guðs barna.

T Valdimar Briem – Sb. 1886
L Johan P.E. Hartmann 1852 – JH 1885
Til himlene rækker din miskundhed, Gud
Eldra númer 253
Eldra númer útskýring T+L

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is