36. Sjá, himins opnast hlið ♥
1 Sjá, himins opnast hlið,
heilagt englalið,
fylking sú hin fríða
úr fagnaðarins sal
fer með boðun blíða
og blessun lýsa skal
:,: yfir eymdadal. :,:
2 Í heimi' er dimmt og hljótt,
hjarðmenn sjá um nótt
ljós í lofti glæðast,
það ljós Guðs dýrðar er,
hjörtu þeirra hræðast
en Herrans engill tér:
:,: „Óttist ekki þér. :,:
3 Með fegins fregn ég kem:
Fæðst í Betlehem
blessað barn það hefur
er birtir Guð á jörð,
frið og frelsi gefur
og fallna reisir hjörð.
:,: Þökk sé Guði gjörð.“ :,:
4 Já, þakka, sál mín, þú,
þakka' og lofsyng nú
fæddum friðargjafa
því frelsari' er hann þinn,
seg þú: „Hann skal hafa
æ hjá mér bústað sinn,
:,: vinur velkominn.“ :,:
5 Ó, Guðs hinn sanni son,
sigur, líf og von
rís með þér og rætist,
þú réttlætisins sól,
allt mitt angur bætist,
þú ert mitt ljós og skjól.
:,: Ég held glaður jól. :,:
6 Á hæstri hátíð nú
hjartafólgin trú
honum fagni' og hneigi
af himni' er kominn er,
sál og tunga segi
með sælum englaher:
:,: „Dýrð sé, Drottinn, þér.“ :,: