Sálmabók

371. Guð, sem leggur lífsins huldu brautir

1 Guð, sem leggur lífsins huldu brautir,
lætur ást og drauma tveggja mætast,
gjör þau eitt í trú og von og vilja,
veit þeim náð að láta heit sín rætast.

2 Verið, brúðhjón, vígð til lífs með Kristi,
vakið, biðjið, fylgið, treystið honum,
verði allt sem annað hinu gefur
uppfylling á hans og ykkar vonum.

3 Látið hendur hlýna við hans loga,
hug og augu spegla ljós hans anda
svo þið verðið gleði Guðs hvort öðru,
gjöf sem blessar hamingju og vanda.

4 Dýrð sé þér í dag og allar stundir,
Drottinn, faðir, sonur, helgur andi.
Heyr þá bæn að börn þín saman verði
blessun sér og gæfa þjóð og landi.

T Sigurbjörn Einarsson 1985 – Vb. 1991
Faðir vor þín eilíf elska vakir
L Þorkell Sigurbjörnsson 1985 – Vb. 1991
Faðir vor þín eilíf elska vakir
Eldra númer 590
Eldra númer útskýring T+L

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is