Sálmabók

378. Þar sem englarnir syngja sefur þú

Kveðja

1 Þar sem englarnir syngja sefur þú,
sefur í djúpinu væra.
Við hin sem lifum, lifum í trú
að ljósið bjarta, skæra
:,: veki þig með sól að morgni. :,:

2 Drottinn, minn faðir, lífsins ljós,
lát náð þína skína svo blíða.
Minn styrkur þú ert, mín lífsins rós,
tak burt minn myrka kvíða.
:,: Þú vekur hann með sól að morgni. :,:

3 Faðir minn, láttu lífsins sól
lýsa upp sorgmætt hjarta.
Hjá þér ég finn frið og skjól.
Láttu svo ljósið þitt bjarta
:,: vekja hann með sól að morgni. :,:

4 Drottinn minn, réttu sorgmæddri sál
svala líknarhönd
og slökk þú hjartans harmabál,
slít sundur dauðans bönd.
:,: Svo vaknar hann með sól að morgni. :,:

5 Farðu í friði, vinur minn kær,
faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér nær,
aldrei ég skal þér gleyma.
:,: Svo vöknum við með sól að morgni. :,:

T Bubbi Morthens (Ásbjörn K. Morthens) 2002
L Bubbi Morthens (Ásbjörn K. Morthens) 2002

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is