Sálmabók

38. Jesú, þú ert vort jólaljós

1 Jesú, þú ert vort jólaljós,
um jólin ljómar þín stjarna.
Þér englarnir kveða himneskt hrós,
það hljómar og raust Guðs barna.
Skammdegismyrkrið skyggir svart,
ei skugga sjáum þó tóma.
Þú ljósið af hæðum, blítt og bjart,
þú ber oss svo fagran ljóma.

2 Jesú, þú ert vort jólatré,
á jörðu plantaður varstu.
Þú ljómandi ávöxt lést í té
og lifandi greinar barstu.
Vetrarins frost þó hér sé hart
og hneppi lífið í dróma
þú kemur með vorsins skrúð og skart
og skrýðir allt nýjum blóma.

3 Jesú, þú ert vor jólagjöf
sem jafnan besta vér fáum.
Þú gefinn ert oss við ystu höf
en einkum þó börnum smáum.
Brestur oss alla býsna margt.
Heyr barnavarirnar óma.
Þú gefur oss lífsins gullið bjart,
því gleðinnar raddir hljóma.

T Valdimar Briem, 1893 – Vb. 1912
L Christoph E.F. Weyse 1841 – BÞ 1912
Julen har bragt velsignet bud
Eldra númer 94
Eldra númer útskýring T+L

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is