Sálmabók

386. Lofið Guð, ó, lýðir, göfgið hann

Lofið Guð, ó, lýðir, göfgið hann,
heiðrið Guð, ó, heiðrið föður þann,
tignið Drottins tignarnafn, hans tign ei breytist,
miklið Drottins náðarnafn, hans náð ei þreytist,
mildin hans við menn ei þrýtur,
miskunn hans til aumra lítur,
ástin hans ei enda hlýtur,
eilíf tryggð hans aldrei bregst.
Öll hans stjórn og umsjá ber um elsku vottinn.
Lofi nafn hans lýður hver, já, lofið Drottin.

T Jón Þorsteinsson – Sb. 1671 – Helgi Hálfdánarson – Sb. 1886
L Pétur Guðjohnsen – PG 1861
Eldra númer 24
Eldra númer útskýring T+L

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is