Sálmabók

406a. Þann signaða dag

1 Þann signaða dag vér sjáum enn
með sólunni' af djúpi rísa.
Oss alla það veki, auma menn,
að oss virðist Drottinn lýsa.
Því lýsi vor verk oss, ljóssins börn,
að lengur ei myrkrin hýsa.

2 Þá signuðu stund, þá sælu nátt
er sonur Guðs blíður fæddist,
þá ljómaði' af degi' í austurátt
og ógurlegt myrkrið hræddist
og ljúflega breiddist ljós um heim,
allt lífið að nýju glæddist.

3 Þó strá hvert á jörðu' og lilja' í lund
og lauf fengi röddu skæra
og allt vildi Guði alla stund
með englunum lofsöng færa
sú vegsemdin yrði döpur og dauð
mót dýrðinni ljóssins kæra.

4 Af gröfinni rís með gull í mund
hinn glóandi morgunblómi,
með kórónu gullna kvöldsins stund
loks kemur í góðu tómi,
þá leikur svo dátt á brá með blund
hinn blessaði aftanljómi.

5 Til föðurlands vors svo förum heim,
þar framar ei rennur dagur.
Borg lifanda Guðs í löndum þeim
og ljóminn svo undrafagur
oss tekur þá við – þar endar ei
vor indæli sæluhagur.

T Sænsk-danskur miðaldasálmur – Sb. 1589 – Nikolaj F.S. Grundtvig 1826 – Stefán Thorarensen – Vb. 1861
Den signede dag, som nu vi ser
L Christoph E.F. Weyse 1826 – PG 1861
Den signede dag med fryd vi ser
Sálmar með sama lagi 150 649a
Eldra númer 447
Eldra númer útskýring T+L

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is