Sálmabók

481. Lof sé þér um ár og öld

1 Lof sé þér um ár og öld,
mikli Drottinn dýrðarinnar,
dýrðar vil ég minnast þinnar,
þér sé vegsemd þúsundföld.
Kynslóð eftir kynslóð lofar
kærleik þinn og speki' og mátt,
þú sem ríkir öllu ofar,
allt þú blessar, stórt og smátt.

2 Miskunnsamur mjög þú ert,
ó, hve þú, minn Guð, ert góður,
gæskuríkur, þolinmóður,
öll þín verk það vitna bert.
Öll þín verk þitt veldi róma,
vegsama þitt dýrðarráð,
öll þín verk þó einkum hljóma
um þinn kærleik, líkn og náð.

3 Allra vona augu' á þig,
þú upp hendi þinni lýkur,
þú ert ætíð nógu ríkur
alla' að blessa' og einnig mig.
Öllum þeim sem á þig kalla
allt þú lætur gott í té,
frelsar þú og annast alla.
Eilíft lof og dýrð þér sé.

T Valdimar Briem – Sb. 1886
L Jean B. Lully 1661 – Kingo 1674 – Paradísarlykill 1686 – Sb. 1751
Rind nu op i Jesu navn/ Sommes-nous pas trop heureux
Sálmar með sama lagi 521
Eldra númer 2
Eldra númer útskýring T+L
Biblíutilvísun Sálm. 145

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is