Sálmabók

516a. Son Guðs ertu með sanni

Son Guðs ertu með sanni,
sonur Guðs, Jesú minn,
son Guðs, syndugum manni
sonararf skenktir þinn,
son Guðs einn eingetinn,
syni Guðs syngi glaður
sérhver lifandi maður
heiður í hvert eitt sinn.

T Hallgrímur Pétursson Ps. 25
L Hamborg 1598 – Gr. 1691 – PG 1861
Aus meines Herzen Grunde
Sálmar með sama lagi 397
Eldra númer 56
Eldra númer útskýring T+L

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is