Sálmabók

545. Kenn þú mér, Guð

1 Kenn þú mér, Guð, að þekkja vilja þinn,
þrá lát mitt hjarta æ að sé hann minn.
Skammsýnn ég er, ó, vísa mér þinn veg,
veit þú mér styrk ef hrasa ég.

2 Drottinn, þú veist hve sljótt mitt auga er,
opna það, Drottinn minn, uns glöggt það sér
veg þinn og ljós en umfram allt samt þig,
eilífi Guð, sem dóst fyrir’ mig.

3 Ó, hversu sælt ef aðeins á ég þig,
eilífi Guð, er frelsar sekan mig.
Hjarta mitt gleðst að allt þitt auga sér.
Eilífi Guð, það nægir mér.

T Bjarni Eyjólfsson, 1949
L Helen Jun Marth 1943
Teach Me Thy Will

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is