551. Á hverjum degi, Drottinn minn, ég bið ♥
1 Á hverjum degi, Drottinn minn, ég bið,
:,: Drottinn minn, ég bið um kærleika og frið. :,:
2. Ég bið þig, Drottinn, bægðu myrkri frá,
:,: bægðu myrkri frá svo blindir megi sjá. :,:
3. Ég þarf, Guð minn góður, þína hjálp,
:,: Guð minn, þína hjálp að fást við lífið sjálft. :,:
4. Drottinn, leyf þú mér að lifa´ í sátt,
:,: leyf mér lifa' í sátt við menn og æðri mátt. :,:
T KK (Kristján Kristjánsson) 2009 – Vb. 2013
Á hverjum degi, Drottinn minn, ég bið
L KK (Kristján Kristjánsson) 2009 – Vb. 2013
Á hverjum degi, Drottinn minn, ég bið
Eldra númer 926
Eldra númer útskýring T+L