Sálmabók

571. Leitið Guðs ríkis

1 Leitið Guðs ríkis og réttlætis nú,
ríkis Guðs föður á himnum.
Allt annað Guð oss þá gefur í trú.
Hallelú, hallelúja.

2 Þegar þér safnist hér saman á jörð
sjálfur þá kem ég til yðar.
Bænir ég heyri frá heilagra hjörð.
Hallelú, hallelúja.

3 Ekki af brauðinu einu á storð
eingöngu lifað vér fáum.
Heyra vér þurfum Guðs heilaga orð.
Hallelú, hallelúja.

T Karen Lafferty 1972 – Jónas Gíslason 1972 – Vb. 2013
Seek Ye First the Kingdom of God
L Karen Lafferty 1972 – Vb. 2013
SEEK YE FIRST
Eldra númer 834
Eldra númer útskýring T+L

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is