Sálmabók

576. Á þig, Jesú Krist, ég kalla

1 Á þig, Jesú Krist, ég kalla,
kraft mér auka þig ég bið.
Hjálpa þú mér ævi alla
að ég haldi tryggð þig við.
Líkna mér og lát mér falla
ljúft að stunda helgan sið.

2 Veit að það sem heimur heldur
heill ei dragi mig frá þér.
Það sem fyrir gott hann geldur
gjarnan spott og vanþökk er
en það sælu æðstu veldur
ef vér, Drottinn, hlýðnumst þér.

3 Þá skal trú mín, þýði Herra,
þægan ávöxt bera sinn,
Drottins ætíð dýrðin vera
dug og kraft er efldi minn,
fasta vörn skal fyrir bera
freistar mín ef heimurinn.

4 Heyrir þú mitt hróp, ég treysti,
Herra, þér, og stenst ég þá.
Þótt mín syndir þráfalt freisti
þú mér aldrei víkur frá
en mér sendir sanna hreysti
sigri frægum loks að ná.

T Johann Agricola um 1526 – Sb. 1589 – Jón Espólín – Sb. 1801
Ich ruf zu dir, Herr Jesu Christ
L John Goss 1869 – Sb. 1997
LAUDA ANIMA / Praise, My Soul
Sálmar með sama lagi 231 240
Eldra númer 196
Eldra númer útskýring T+L

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is