Sálmabók

584. Ó, leið mig þá leið

Ó, leið mig þá leið, svo legg ég af stað,
svo legg ég af stað með Guði.
Leið trúar, leið trausts, leið tryggðar hvern dag
sem treysti ég einum Guði.
Ó, birt mér þá bæn sem beðið ég get
svo berist mitt lof að Guði.
Og kenn mér þá ósk sem æskja ég skal
svo verði' allt mitt líf í Guði.

T Haukur Ágústsson 1969 – Vb. 2013
L Haukur Ágústsson 1969 – Vb. 2013
Eldra númer 921
Eldra númer útskýring T+L

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is